Alþjóðaheilbrigðisstofnunin á hæsta viðbúnaðarstig vegna apabólu

Yfir 16 þúsund apabólutilfelli hafa verið greind í 75 löndum. Vonir standa til að hækkun viðbúnaðarstigs muni flýta þróun bóluefna og stuðla að því að takmarkanir verði teknar upp til að hindra för veirunnar.

Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus er forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO.
Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus er forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO.
Auglýsing

Far­aldur apa­bólu hefur verið skil­greindur sem heilsu­far­s­vanda­mál sem heims­byggð­inni stafar hætta af. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) hefur lýst yfir hæsta við­bún­að­ar­stigi af þessum sökum en mikil fjölgun hefur orðið á greindum til­fellum apa­bólu að und­an­förnu.

Neyð­ar­nefnd WHO kom saman í annað sinn vegna far­ald­urs apa­bólu og hækk­aði við­bún­að­ar­stig sitt í kjöl­far fund­ar­ins. Að sögn T​​edros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóra WHO, hafa yfir 16 þús­und til­felli nú verið greind í 75 lönd­um. Fimm hafa lát­ist af völdum apa­bólu.

Evr­ópu­búum meiri hætta búin en öðrum

Á vef BBC segir að ekki hafi ríkt ein­hugur innan neyð­ar­nefnd­ar­innar um að færa við­bún­að­ar­stig í hæsta flokk. Dr. Ghebr­­eyesus taldi það aftur á móti nauð­syn­legt vegna þess hversu hröð dreif­ing veirunnar hefur verið og vegna þess að málið snerti heims­byggð­ina alla.

Auglýsing

„WHO metur það sem svo að hætta af apa­bólu sé í með­al­lagi á öllum svæðum heims­ins, fyrir utan Evr­ópu, en þar metum við hætt­una vera mikla,“ er haft eftir Dr. Ghebr­eyesus. Hætta sé á að dreif­ing muni aukast en í kjöl­far auk­ins við­bún­aðar er við­búið að þróun bólu­efna verði hrað­ari auk þess sem við­bún­að­ar­stigið stuðli að því að teknar verði upp tak­mark­anir sem hefti för veirunn­ar.

Smánun og mis­munun geti verið hættu­leg

WHO mun gefa út leið­bein­ingar varð­andi tak­mark­anir og von­ast stjórn­endur WHO til þess að lönd taki þær upp til að vernda við­kvæma hópa og koma í veg fyrir mikla útbreiðslu veirunn­ar.

Dr. Ghebr­eyesus sagði að mest væri um smit meðal karla sem hafa átt í nánum sam­böndum við karla og þá sér­stak­lega meðal karla sem eigi marga rekkju­nauta. Hann bætti því við að lönd heims­ins þyrftu ráð­ast í aðgerðir til þess að vernda heilsu þeirra, mann­rétt­indi og virð­ingu. „Smánun og mis­munun geta verið alveg jafn hættu­leg og hver önnur veira,“ sagði Dr. Ghebr­eyesus.

Níu smit­ast á Ísland

Í það minnsta níu manns hafa greinst með apa­bólu hér á landi. Á mið­viku­dag sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að engar vís­bend­ingar væru um að far­aldur apa­bólu væri í rénun og að von væri á bólu­efni gegn veirunni frá Dan­mörku.

„Við erum að fá bólu­efni sem Danir eru að lána okk­ur, 40 skammta, og Land­spít­al­inn mun sjá um bólu­setn­ing­una. Síðan erum við ennþá að bíða eftir fleiri skömmtum frá Evr­ópu­sam­band­inu. Það er ekki ljóst hvenær þeir koma en ég held að það farist nú að stytt­ast mjög í það,“ sagði Þórólfur í við­tali við RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent