Álverð hefur neikvæð áhrif á HS Orku en rekstur góður, segir forstjórinn

hsorka.jpg
Auglýsing

Hagn­aður HS Orku á fyrri helm­ingi árs nam 75 millj­ónum króna, sam­an­borið við 715 millj­óna króna hagnað á sama tíma­bili 2014. Rekstr­ar­tekjur juk­ust þó milli tíma­bil­anna um sjö pró­sent og námu 3.827 millj­ónum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015. Virði afleiða, það er fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga sem tengj­ast álverði, voru lækk­aðar í bókum fyr­ir­tæk­is­ins um 1.239 millj­ónir króna á fyrri helm­ingi árs­ins. Geng­is­tap félags­ins á tíma­bil­inu nam 282 millj­ónum króna, sam­an­borið við geng­is­hagnað á fyrri helm­ingi árs 2014 upp á 221 millj­ón.

„Ann­ars vegar er álverð lágt og hins vegar hefur doll­ar­inn styrkst á móti krón­u,“ segir Ásgeir Mar­geirs­son, for­stjóri HS Orku, í sam­tali við Kjarn­ann. Fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga byggir á spám um álverð sem hafa verið lækk­aðar að und­an­förnu, sam­hliða tölu­verðri lækkun heims­mark­aðs­verð á áli.

„Rekst­ur­inn gengur vel, raf­orku­salan gengur vel og efna­hag­ur­inn er sterk­ur,“ segir Ásgeir og bætir því við að það skipti meiru máli en nei­kvæðar breyt­ingar á fjár­magnslið­um. „Raun­tölur eru góð­ar,“ segir hann.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu um upp­gjörið til Kaup­hall­ar­innar kemur fram að tekjur juk­ust milli fyrri árs­helm­inga 2015 og 2014 um 244 millj­ónir en rekstr­ar­kostn­aður jókst um 98 millj­ón­ir. „Tekjur hafa auk­ist bæði frá smá­sölu­mark­aði og frá stórnot­end­um. Rekstr­ar­kostn­aður orku­vera hefur auk­ist nokk­uð, orku­kaup hafa auk­ist tals­vert og flutn­ings­kostn­aður hækkað sömu­leið­is,“ segir í til­kynn­ing­unni. Rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBIT­DA) jókst um 13 pró­sent milli tíma­bili og nam alls 1.515 millj­ónum á fyrri helm­ingi árs 2015. Eig­in­fjár­hlut­fall HS Orku í lok júní 2015 var 58,8 pró­sent.

HS Orka fram­leiðir raf­orku og selur í smá­sölu og til stórnot­enda. Meðal eigna fyr­ir­tæk­is­ins er 30 pró­sent hlutur í Bláa lón­inu. HS Orka er í einka­eigu, félagið Magma Energy á tvo þriðju hluta hluta­fjár í HS Orku og félagið Jarð­varmi, sem aftur er í eigu líf­eyr­is­sjóða, á þriðj­ung hluta­fjár.

Fram­tíð­ar­virði lækkar



HS Orka selur Norð­ur­áli raf­orku til álf­ram­leiðslu, verðið í doll­ur­um, og er tengt álverði á heims­mark­aðs­verði. Styrk­ing doll­ars­ins og lækkun álverðs hefur því nei­kvæð áhrif á tekjur HS Orku. Þess vegna er 282 millj­óna geng­is­tap bókað á fyrri helm­ingi árs og fram­tíð­ar­virði orku­sölu­samn­inga lækkað um 1.200 millj­ónir króna í bókum HS Orku.

Fjallað er um þróun álverðs í Frétta­blað­inu í dag, þar sem fram kemur að heims­mark­aðs­verðs hefur lækkað um tæp 18 pró­sent frá því í nóv­em­ber 2014.

Mik­ill kostn­aður við gerð­ar­dóm



Norð­ur­ál, við­skipta­vinur HS Orku, hefur lengi unnið að bygg­ingu álvers í Helgu­vík. Samn­ingar voru und­ir­rit­aðir árið 2007 um að HS Orka veiti álver­inu raf­orku. Þegar álverið reis ekki taldi HS Orku samng­ing­inn ekki lengur í gildi. Því er Norð­urál ósam­mála og fer málið fyrir sér­stakan gerð­ar­dóm. Hann kemur saman í apríl 2016. HS Orku getur ekki selt ork­una annað áður en nið­ur­staða gerð­ar­dóms liggur fyr­ir, en orku­sölu­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. Hluti raf­orku HS Orku er þannig í dag bundin í óbyggðu álver.

Í sam­tali við Kjarn­ann vildi Ásgeir ekki segja nákvæm­lega hvað gerð­ar­dóm­ur­inn mynd­i ­kosta HS Orku, en sagði hann gæti farið „í þriggja stafa tölu“ og á hann þá við að kostn­aður geti numið hund­ruðum millj­óna króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None