Ármann ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson oddviti Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri í Kópavogi frá árinu 2012 ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í sveitarstjórnarkosningunum í maí.

Ármann Kr. Ólafsson hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og bæjarstjóri frá árinu 2012.
Ármann Kr. Ólafsson hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og bæjarstjóri frá árinu 2012.
Auglýsing

Ármann Kr. Ólafs­son, bæj­ar­stjóri í Kópa­vogi, ætlar ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Frá þessu segir hann í frétta­til­kynn­ingu í dag.

Ármann hefur verið bæj­ar­full­trúi allt frá árinu 1998 og bæj­ar­stjóri frá árinu 2012, en seg­ist nú telja tíma­bært að stíga til hliðar og að annar taki við kefl­inu.

„Á þeim tíma sem ég hef starfað í bæj­ar­mál­unum hefur Kópa­vogur tekið miklum breyt­ingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvö­fald­ast og telur nú um 40.000 manns. Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í gegnum þær umbreyt­ingar sem hafa átt sér stað í Kópa­vogi og hafa leitt flokk­inn síð­ustu 12 ár,“ segir í yfir­lýs­ingu Ármanns, sem lesa má í heild sinni hér að neð­an.

Próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópa­vogi fer fram þann 12. mars, en flokk­ur­inn á í meiri­hluta­sam­starfi í bænum ásamt Fram­sókn­ar­flokki. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með 5 af 11 bæj­ar­full­trúum og fékk 36,12 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Kópa­vogi árið 2018.

Til­kynn­ing Ármanns í heild sinni:

Á fundi kjör­nefndar Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópa­vog í gær­kvöldi skýrði ég nefnd­inni frá því að ég myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópa­vogi þann 12. mars n.k. vegna kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Síð­ustu 25 ár hef ég helgað mig bæj­ar­mál­unum í Kópa­vogi. Ég var kjör­inn bæj­ar­full­trúi árið 1998 og hef verið bæj­ar­stjóri frá árinu 2012 en ég tel nú tíma­bært að stíga til hliðar og að annar taki við kefl­inu.

Auglýsing

Á þeim tíma sem ég hef starfað í bæj­ar­mál­unum hefur Kópa­vogur tekið miklum breyt­ingum þar sem fjöldi íbúa í bænum hefur tvö­fald­ast og telur nú um 40.000 manns. Ég er stoltur af því að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í gegnum þær umbreyt­ingar sem hafa átt sér stað í Kópa­vogi og hafa leitt flokk­inn síð­ustu 12 ár. Ég hef ávallt haft þá sýn að góður rekstur og ábyrg fjár­mála­stjórn sé und­ir­staða blóm­legs vaxtar bæj­ar­fé­lags­ins og er þeirrar skoð­unar að það skýri þá sterku stöðu sem bær­inn nýtur núna.

Á þeim tíma sem ég hef setið í bæj­ar­stjórn Kópa­vogs hef ég kynnst og átt sam­leið með fjölda fólks. Vil ég nota þetta tæki­færi og þakka Kópa­vogs­búum öll­um, öfl­ugu og góðu starfs­fólki Kópa­vogs­bæj­ar, Sjálf­stæð­is­fólki í Kópa­vogi fyrir þeirra ómet­an­lega og óeig­in­gjarna starf, póli­tískum full­trúum allra flokka í Kópa­vogi og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þeim full­trúum fyr­ir­tækja og félaga­sam­taka sem ég hef kynnst og unnið með í gegnum tíð­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent