Arnarlax getur ekki gert grein fyrir afdrifum tugþúsunda laxa – „Vítavert aðgæsluleysi“

Matvælastofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á laxeldisfyrirtækið Arnarlax upp á 120 milljónir króna fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski.

Verið getur að tugþúsundir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síðasta sumar.
Verið getur að tugþúsundir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síðasta sumar.
Auglýsing

Aðeins 18.315 laxar reynd­ust vera í kví lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax í Haga­nesi í Arn­ar­firði er slátrað var upp úr henni í októ­ber. Sam­kvæmt skrán­ingu hafði tæp­lega 133 þús­und löxum verið sleppt í kvína. Því er ljóst að fyr­ir­tækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta. Þeir hafa lík­lega sloppið úr kvínni og gæti sá atburður hafa átt sér stað í fyrra­sum­ar.

Auglýsing

Mat­væla­stofnun hefur því ákveðið að sekta Arn­ar­lax um 120 millj­ónir króna „fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski,“ líkt og segir í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í októ­ber 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en nú í októ­ber, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reynd­ist fjöld­inn sem upp kom hins vegar vera aðeins 18.315 lax­ar.

Arnarlax stundar sjókvíaeldi á Vestfjörðum.

Í ágúst í fyrra til­kynnti Arn­ar­lax um að gat hefði fund­ist á einmitt þess­ari kví. Þá voru við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins í sam­ræmi við kröfur sem gerðar eru um slíka atburði að mati Mat­væla­stofn­un­ar. Tugir laxa úr kvínni veidd­ust svo í ám við Arn­ar­fjörð, m.a. í Mjólká, skammt frá virkj­un­inni.

En þegar tölur úr slátr­un­inni í októ­ber lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúm­lega 80 þús­und laxa, hóf MAST strax rann­sókn og krafði Arn­ar­lax meðal ann­ars um skýr­ingar á mis­ræmi í fóð­ur­gjöf miðað við upp­gef­inn fjölda fiska í kvínni.

Kom þá í ljós að veru­leg frá­vik höfðu orðið í fóð­ur­gjöf í kví 11 frá því í júní 2021, eða tveimur mán­uðum áður en til­kynnt var um gat á kvínni síð­ast­liðið sum­ar, „sem hefðu átt að vekja sterkar grun­semdir fyr­ir­tæk­is­ins um að eitt­hvað alvar­legt væri á seyð­i,“ segir MAST.

Alvar­legt brot

Sam­kvæmt 1. gr. laga um fisk­eldi eru mark­mið lag­anna meðal ann­ars þau að stuðla að ábyrgu fisk­eldi og tryggja verndun villtra nytja­stofna og telur Mat­væla­stofnun að um alvar­legt brot sé að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytja­stofna og líf­ríki, sem og að um er ræða brot sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri stjórn og innra eft­ir­liti fyr­ir­tæk­is­ins. Mat­væla­stofnun telur aðgæslu­leysi Arn­ar­lax hafi verið víta­vert og afleið­ingar þess mjög alvar­leg­ar.

Sam­kvæmt sömu lögum getur Mat­væla­stofnun lagt stjórn­valds­sekt á þá aðila sem brjóta gegn skyldu um að til­kynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski, hvort sem umrædd brot megi rekja til ásetn­ings eða gáleys­is. Jafn­framt segir í lög­unum að við ákvörðun sektar skuli m.a. tekið til­lit til alvar­leika brots, hvað það hafi staðið lengi og þeirra hags­muna sem eru í húfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent