„Athyglisvert“ að fylgjast með fólki túlka orð utanríkisráðherra

12051580134_94606deacc_z.jpg
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir í sam­tali við RÚV það hafa verið „at­hygl­is­vert“ að fylgj­ast með fólki túlka orð hans um hval­veiðar und­an­farna viku. Í við­tali við Skessu­horn í síð­ustu viku sagði Gunnar Bragi tíma­bært að end­ur­skoða hval­veiðar við Ísland vegna þrýst­ings alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Jon Gunnarsson Jón Gunn­ars­son

Haft er eftir Jóni Gunn­ars­syni, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþing­is, á vef RÚV að hann sé „al­gjör­lega ósa­mála Gunn­ari Braga í þess­ari nálgun hans á mál­in­u.“ Á Face­book hefur hann jafn­framt farið mik­inn bent þeim á sem segja hval­veiðar standa ferða­þjón­ustu fyrir þrifum að slíkar full­yrð­ingar stand­ist enga skoð­un.

Auglýsing

„Bendi á að þegar atvinnu­veiðar voru heim­il­aðar drógu and­stæð­ingar upp mjög dökka mynd af nei­kvæðum áhrifum á ferða­þjón­ustu og útflutn­ings­grein­ar,“ skrif­aði Jón. „Ekk­ert af þessu gekk eft­ir. Í öðru lagi þá snýst málið um sjálf­stæðan rétt okkar um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda og rétt ein­stak­linga til atvinnu­frels­is, grund­vall­ar­rétt­indi sem Sjálf­stæð­is­menn standa vörð um.“

Enn í sam­tali við RÚV sagði Jón að honum þætti jafn­vel eðli­legt að auka hval­veiðar hér við land. Gunnar Bragi seg­ist hafa viljað benda á þann þrýst­ing sem Íslend­ingar verða fyrir á alþjóða­vett­vangi vegna hval­veið­anna. „[…] það er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur hvort við ættum ekki að koma til móts við alþjóða hval­veiði­ráðið til að mynda með því að veiða færri hvali árlega en við gerum nú,“ lét Gunnar Bragi hafa eftir sér í við­tal­inu í Skessu­horni.

„Ég reyndar ítreka í við­tal­inu að við megum aldrei gefa eftir rétt okkar til að veiða hvali. Ég vil líka taka fram að hrefnan er und­an­skilin við þetta. Ég held að við eigum að veiða hrefn­una sem aldrei fyrr,“ segir Gunnar Bragi í sam­tali sínu við RÚV. „Ég taldi það skyldu mína að velta þessu upp, hvort það geti þjónað hags­munum okk­ar. En það ekki mitt að ákveða það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None