Benedikt Árnason skipaður ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað Benedikt Árnason í embætti ráðuneytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Benedikt Árnason er nýr ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Benedikt Árnason er nýr ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur skipað Bene­dikt Árna­son í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Bene­dikt tekur við af Krist­jáni Skarp­héð­ins­syni frá­far­andi ráðu­neyt­is­stjóra. Frá þessu er greint í dag í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Bene­dikt er sagður búa yfir mik­illi reynslu af störfum innan stjórn­ar­ráðs­ins og íslenskrar stjórn­sýslu. Síð­ast var hann skrif­stofu­stjóri skrif­stofu stefnu­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá árinu 2016 og hefur verið stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra þar.

Hann er þjóð­hag­fræð­ingur að mennt frá Háskóla Íslands og Toronto-há­skóla í Kanada og hefur einnig lokið MBA gráðu í fjár­málum og stefnu­mótun frá sama skóla.

Auglýsing

Hann starf­aði hjá Þjóð­hags­stofnun frá árinu 1988 til 1993 í hluta­starfi með námi og fullu starfi frá árinu 1993 til 1994. Árið 1994 tók hann við starfi skrif­stofu- og fjár­mála­stjóra hjá Vita- og hafn­ar­mála­stofnun og gegndi því fram til árs­ins 1995. Bene­dikt hóf störf í iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu árið 1996. Fyrst sem deild­ar­stjóri og síðar skrif­stofu­stjóri fjár­mála­mark­aðar og stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra árið 1998 og starf­aði sem slíkur fram til árs­ins 2004.

Árið 2005 hóf Bene­dikt störf sem einn af aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjórum Nor­ræna fjár­fest­inga­bank­ans í Helsinki og svæð­is­stjóri fyrir Ísland. Þar starf­aði hann fram til árs­ins 2008 en þá tók hann við starfi sem aðstoð­ar­for­stjóri Askar Capi­tal fjár­fest­inga­banka hf. Síðar sama ár varð Bene­dikt for­stjóri sama fyr­ir­tækis og starf­aði sem slíku fram til árs­ins 2010.

Árið 2010 til 2013 var Bene­dikt aðal­hag­fræð­ingur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Hann hóf störf árið 2013 í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnda rík­is­stjórn­ar­innar og hefur frá árinu 2016 og fram til dags­ins í dag gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóra skrif­stofu stefnu­mála og síðar stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra.

Alls bár­ust 13 umsóknir um emb­ætt­ið, sem var aug­lýst í byrjun maí. Hæfn­is­nefnd mat þrjá umsækj­endur hæf­asta til þess að gegna emb­ætt­inu. Ráð­herra boð­aði í fram­haldi við­kom­andi til við­tals og var það mat ráð­herra að Bene­dikt væri hæf­astur umsækj­enda til að taka við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent