Björgvin Páll gefur til kynna að hann íhugi framboð fyrir Framsókn í Reykjavík

Landsliðsmarkvörður í handbolta viðrar framboð til borgarstjórnar í Reykjavík í dag og segir að „X við B fyrir Björgvin og börnin“ hljómi vel.

Björgvin Páll Gústafsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Björgvin Páll Gústafsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Auglýsing

Björg­vin Páll Gúst­afs­son hand­bolta­mark­vörður sagði frá því í löngu máli á sam­fé­lags­miðlum í morgun að þjóð­þekktur ein­stak­lingur hefði komið að máli við sig á dög­unum og skorað á hann um að gefa kost á sér til þess að verða borg­ar­stjóra­efni í Reykja­vík. Af færslu hans má lesa að fram­boð­ið, ef af verði, yrði fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

„En er ég efni í næsta borg­ar­stjóra í Reykja­vík? Ég hrein­lega veit það ekki... Ef ég tæki slag­inn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í bylt­ingu er kemur að mál­efnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björg­vin og börnin er eitt­hvað sem hljómar alla­vega vel,“ ­segir í nið­ur­lagi færsl­unnar frá Björg­vini Páli.

Hann segir í færslu sinni að mað­ur­inn sem hringdi og hvatti hann til að gefa kost á sér þekki vel til ástríðu Björg­vins Páls fyrir mál­efnum barna. „Það skrýtna er að þessi hug­mynd hljóm­aði ein­hverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virki­lega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér,“ segir í færslu Björg­vins Páls.

Auglýsing

„Haus­inn fór eðli­lega á fullt og ég hugs­aði afhverju við­kom­andi héldi að ég gæti orðið góður borg­ar­sjtjóri. Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skóla­kerfin okkar og hlúa betur að for­eldr­um. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þess­ari hug­mynd upp­,“ ­segir Björg­vin Páll, sem í færslu sinni rekur að hann sé „ekki bara hand­bolta­kall“ heldur líka „líka 6 ára strák­ur­inn sem beit kenn­ar­inn minn, 8 ára strák­ur­inn sem var tekin með hníf í skól­anum og lagðir inná BUGL, 12 ára strák­ur­inn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strák­ur­inn sem heyrði kennar­ann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strák­ur­inn sem skóla­kerfið brást, strák­ur­inn sem fékk aldrei grein­ing­una mína og lyfin mín, ég er strák­ur­inn sem ólst upp við erf­iðar aðstæð­ur, strák­ur­inn sem íþrótt­irnar björg­uðu“ og fleira til.

Kvöldið sem ég lennti á Íslandi eftir EM fékk ég sím­tal frá þjóð­þekktum ein­stak­lingi sem ég ber mikla virð­ingu fyr­ir­....

Posted by Björg­vin Páll Gúst­avs­son on Thurs­day, Febru­ary 3, 2022

„Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smoll­ið,“ segir einnig í færslu Björg­vins um þetta mögu­lega fram­boð, sem eins og áður segir virð­ist hugsað fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Fram­sókn stillir upp eftir afhroð árið 2018

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á í dag ekki einn ein­asta borg­ar­full­trúa eftir að hafa fengið ein­ungis fengið 1.870 atkvæði og þar með 3,2 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018. Fá nöfn hafa til þessa verið nefnd til sög­unnar í bolla­legg­ingum fjöl­miðla um mögu­lega upp­still­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, en fyrir liggur að flokk­ur­inn mun stilla upp á lista í borg­inni.

Þó hefur nafni Hrann­ars Pét­urs­son­ar, aðstoð­ar­manns Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra, skotið upp koll­inum í þeirri umræðu, auk þess sem athygli hefur vakið að Karl Garð­ars­son fyrr­ver­andi alþing­is­maður flokks­ins hefur á und­an­förnu miss­eri stigið inn í opin­bera umræðu um skipu­lags­mál í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent