Búið að kalla saman þingnefnd og boða til þingfundar í kvöld vegna haftamála

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis hefur verið kölluð saman til að funda klukkan 17 í dag. Á dag­skrá fund­ar­ins er und­ir­bún­ingur áætl­unar um losun fjár­magns­hafta. Í kjöl­farið hefur verið boðað til þing­fundar á Alþingi sem mun hefj­ast klukkan 22 í kvöld. Þar á að fjalla um hluta þeirra aðgerða sem rík­is­stjórnin ætlar að ráð­ast í í hafta­málum í kom­andi viku.

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir í sam­tali við Vísi að planið sé að nefndin fjalli um málið fyr­ir­fram svo ekki þurfi að vísa því til henn­ar. "Svo verði hægt að afgreiða þetta í rikk á sem stystum tíma."

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á föstu­dag ­á­ætlun sína um losun hafta fyrir rík­is­stjórn og skýrði frá því að fyrstu frum­vörpin sem þarf að lög­festa til að sú áætlun geti tekið gildi væru vænt­an­leg.

Auglýsing

Afar óvenju­legt er að boðað sé til þing­fundar á sunnu­degi en leiða má líkum að því að ástæðan sé meðal ann­ars sú að rík­is­stjórnin vilji klára afgreiðslu þeirra frum­varpa sem lögð verða fyrir í kvöld áður en mark­aðir opna á morg­un. Með því að afgreiða málið í dag hafi allir sama aðgang að upp­lýs­ingum í fyrra­málið þegar mark­aðir opna.

Ýmis­legt vitað um inni­haldið



Það sem er vitað um áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um losun hafta er að slita­bú­unum verði gefnar nokkrar vikur til þess að ganga frá nauða­samn­ingum sínum sem upp­fylli skil­yrði áætl­un­ar­innar um að ógna ekki greiðslu­jöfn­uði Íslands til lengri tíma. Það þýðir á manna­máli að þau þurfa að gefa eftir umtals­vert af inn­lendum eignum sín­um.

Í DV á föstu­dag kom fram að sú upp­hæð nemi um 500 millj­örðum krona. Tak­ist ekki að semja á þeim tíma sem gefin er verður stöð­ug­leika­skatt­ur, sem DV segir að verði 40 pró­sent, lagður á eignir búanna. Athygli vekur að álagn­ing stöð­ug­leika­skatts­ins er þar með orðin skil­yrt, er nokk­urs konar hót­un, en hann ekki lagður beint á búin.

Við­ræður hafa staðið yfir um nokkur skeið



Við­ræður milli fram­kvæmda­hóps um losun hafta og slita­stjórna Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans hófust með form­legum hætti í fyrra­haust. Á fyrstu fund­unum voru engin skil­yrði lögð fram heldur var farið almennt yfir stöð­una, greiðslu­jöfnuð íslenska hag­kerf­is­ins og fram­lagðar til­lögur um nauð­samn­inga sem þrotabú Kaup­þings og Glitnis hafa lagt fram.

Slita­stjórnir þeirra beggja sóttu nefni­lega báðar um und­an­þágu­heim­ild frá fjár­magns­höftum síðla árs 2012 til að ljúka nauða­samn­ingum sín­um. Seðla­bank­inn gaf það þó fljót­lega út opin­ber­lega að ekki væru for­sendur til að ljúka nauða­samn­ingum með þeim hætti sem und­an­þágu­beiðn­irnar lögðu málið upp. Áhrif nauða­samn­ing­anna á greiðslu­jöfnuð Íslands, og að þau yrðu ekki nei­kvæð, þyrftu fyrst að liggja fyr­ir.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að þau skil­yrði hafi verið lögð fyrir þær á und­an­förnum vikum í við­ræðum milli fram­kvæmda­hóps­ins og full­trúa slita­stjórn­anna. Mikil leynd er yfir þeim við­ræðum og allir sem að þeim koma voru látnir und­ir­rita trún­að­areið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None