Ekki komið til greina að vísa sendiherra Rússlands úr landi

Íslensk stjórnvöld hafa ekki til skoðunar að vísa sendiherra Rússlands úr landi. Í raun hefur erlendum stjórnarerindrekum aldrei verið vísað úr landi en það stóð tæpt í þorskastríðinu árið 1976 þegar Íslendingar slitu stjórnmálasambandi við Breta.

Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórnvalda að vísa sendiherra Rússlands úr landi sökum innrásar Rússlands í Úkraínu.
Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórnvalda að vísa sendiherra Rússlands úr landi sökum innrásar Rússlands í Úkraínu.
Auglýsing

Ekki hefur komið til greina af hálfu íslenskra stjórn­valda að vísa sendi­herra Rúss­lands á Íslandi eða öðrum send­ir­ráðs­starfs­mönnum úr landi vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkra­ínu. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Mik­hail V. Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, var boð­aður til fundar í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í tvígang í vik­unni, fyrst á mið­viku­dag og aftur á fimmtu­dag eftir að inn­rás Rúss­lands í Úkra­ínu hófst. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að á óvissu­tímum sem þessum sé mik­il­vægt að sam­skipta­leiðir séu fyrir hendi á milli stjórn­valda í ríkjum heims.

Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­­­sæt­is­ráð­herra, flutti skýrslu fyrir Alþingi á fimmtu­dag þar sem hún for­­dæmdi harð­­lega inn­­rás Rússa í Úkra­ínu. Á fundi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með sendi­herr­anum á fimmtu­dag var honum gerð grein fyrir afstöðu Íslands og hörðum mót­mælum við inn­rásinni var komið á fram­færi.

Ekki inn­rás heldur „hern­að­ar­að­gerð“

Noskov sagði í kvöld­fréttum RÚV á fimmtu­dag að ekki væri um inn­rás að ræða heldur hern­að­ar­að­gerð til að tryggja öryggi rúss­neskra borg­ara, bæði í Úkra­ínu og í Rúss­landi. Þá sé mark­mið hern­að­ar­að­gerð­ar­innar að draga úr styrk hers­ins í Úkra­ínu.

Ákvörðun Íslands um að vísa sendi­herra ekki úr landi, að minnsta kosti ekki enn sem komið er, byggir meðal ann­ars á Vín­ar­samn­ingnum svo­kall­aða, alþjóða­samn­ingi um stjórn­mála­sam­band. Þar er meðal ann­ars kveðið á um að hlut­verk sendi­ráða sé að vernda hags­muni sendi­rík­is­ins og rík­is­borg­ara þess í mót­töku­rík­inu, innan þeirra tak­marka sem þjóða­réttur set­ur.

Brott­vísun sendi­ráðs­starfs­manna hefur því ekki komið til skoð­unar en utan­rík­is­ráðu­neytið mun fylgj­ast grannt með þróun og við­brögðum helstu vina- og banda­lags­þjóða, að því er segir í skrif­legu svari til Kjarn­ans.

Engin for­dæmi fyrir því að vísa erlendum stjórn­ar­er­ind­rekum úr landi

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eru engin for­dæmi fyrir því að íslensk stjórn­völd vísi erlendum stjórn­ar­er­ind­rekum úr landi.

Það mátti hins vegar ekki tæpara standa í þorska­stríð­inu 1976 þegar Íslend­ingar slitu stjórn­mála­sam­bandi við Breta vegna land­helg­is­deil­unn­ar. Sendi­herrar ríkj­anna fóru til síns heima en ræð­is­sam­bandi var ekki slit­ið. Síðar sama ár var stjórn­mála­sam­band ríkj­anna svo end­ur­nýj­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent