Elín Oddný vill leiða VG í Reykjavík

Spenna er að færast í forval Vinstri grænna í Reykjavík eftir að Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi, greindi frá því að hún ætli að gefa kost á sér í fyrsta sætið. Það ætlar Líf Magneudóttir, núverandi oddviti flokksins, einnig að gera.

Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi VG.
Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi VG.
Auglýsing

Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir vara­borg­ar­full­trúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Félags­fundur VG í Reykja­vík sam­þykkti með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í í fyrra­kvöld að halda flokksval um efstu þrjú sæt­in.

Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi vill leiða list­ann áfram. Hún er eini borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 og tap­aði hátt í fjórum pró­sentu­stigum frá sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2014 og hélt óbreyttum fjölda borg­ar­full­trúa þrátt fyrir að verið væri að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23.

Elín Oddný er með meistara­gráðu í félags- og kynja­fræði frá Háskól­anum í Lundi, Sví­þjóð og er auk þess fram­halds­skóla­kenn­ari að mennt. Hún hefur lengi verið virk í starfi Vinstri grænna, bæði í Reykja­vík og á lands­vísu. Hún hefur gengt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Vinstri græn síð­ast­liðin 17 ár. Meðal ann­ars emb­ætti rit­ara Vinstri grænna og for­manns Ungra Vinstri grænna í Reykja­vík og situr nú í stjórn hreyf­ing­ar­innar á lands­vísu.

Auglýsing

Und­an­farið kjör­tíma­bil hefur Elín Oddný verið vara­borg­ar­full­trúi og hefur m.a. verið vara­for­maður vel­ferð­ar­ráðs, full­trúi í skóla-og frí­stunda­ráði og menn­ing­ar- íþrótta og tóm­stunda­ráði.

„Borg­ar­málin hafa átt hug minn allan frá því að ég tók fyrst sæti sem vara­maður í vel­ferð­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar fyrir fimmtán árum síð­an,“ segir Elín Oddný í fram­boðstil­kynn­ingu sem hún sendi í morg­un, mið­viku­dag.

„Mín hug­sjón er hefur ávallt verið skýr: að vinna í þágu vel­ferðar allra borg­ar­búa í víð­asta skiln­ingi þess hug­taks. Vel­ferð­ar­mál, kven­frelsi, hús­næð­is­mál, menntun og vel­ferð barna ásamt mann­rétt­indum jað­ar­settra hópa hafa ávallt verið mér hug­leik­in. Eins hvernig við sköpum mann­væna, græna og lýð­ræð­is­lega menn­ing­ar­borg fyrir kom­andi kyn­slóð­ir. Ég hef ávallt haft það að leið­ar­ljósi í mínum störfum að það eru ekki alltaf þeir sem eru í mestri þörf hverju sinni sem hafa hæstu rödd­ina.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent