Embætti landlæknis styður afglæpavæðingu neysluskammta en kallar eftir heildrænni stefnu

Embætti landlæknis styður frumvarp Halldóru Mogensen, þingmanns Pírata, sem felur í sér afglæpavæðingu neysluskammta en segir í umsögn sinni um breytingarnar að það sé varhugavert að stíga þetta skref án þess að móta heildarstefnu í málaflokknum.

Frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta var fyrst lagt fram á þingi haustið 2019 af Halldóru Mogensen auk átta annarra þingmanna úr þing­­flokk­um P­írata, Sam­­fylk­ing­­ar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.
Frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta var fyrst lagt fram á þingi haustið 2019 af Halldóru Mogensen auk átta annarra þingmanna úr þing­­flokk­um P­írata, Sam­­fylk­ing­­ar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.
Auglýsing

Emb­ætti land­læknis seg­ist styðja þá nálgun að að refsa ekki ein­stak­lingum sem glíma við heil­brigð­is­vanda eins og ávana eða fíkn og auka heil­brigð­is­þjón­ustu. Íumsögn sinni um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni, sem felur í sér afglæpa­væð­ingu neyslu­­skammta, er stuðn­ing­ur­inn rök­studd­ur, en á sama tíma bendir emb­ættið á að var­huga­vert sé að stíga skrefið án þess að móta heild­ar­stefnu í mála­flokkn­um. Sér­fræð­ingar á vegum emb­ætt­is­ins eru reiðu­búnir að vera til ráð­gjafar um þau áform sem fram koma í frum­varp­inu.

Frum­varpið felur í sér breyt­ingu á ákvæði núgild­andi laga um vörslu og með­­­ferð, „á þann hátt að heim­ila vörslu ávana- og fíkn­i­efna sem telj­­ast til eigin nota“. Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, er flutn­ings­maður frum­varps­ins og var það end­ur­flutt, með breyt­ing­um, í des­em­ber. Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra mælti fyrir frum­varpi um þetta efni síð­ast­lið­ið, sem ekki varð að lög­­­um. Áður höfðu tvö frum­vörp Hall­dóru um efnið ekki náð fram að ganga.

Auglýsing

Frum­varpið er nú hjá vel­ferð­ar­nefnd og frestur til að skila inn umsögnum um frum­varpið rann út 18. febr­ú­ar. Alls bár­ust 29 umsagn­ir.

Allar breyt­ingar kalli á heild­ræna nálgun

Í umsögn sinni ítrekar Emb­ætti land­læknis fyrri afstöðu um að nálg­ast mál­efni þeirra sem eiga í vanda vegna notk­unar eða mis­notk­unar vímu­efna fyrst og fremst sem heil­brigð­is­vanda.

Emb­ættið und­ir­strikar einnig að allar breyt­ingar á mála­flokknum kalli á heild­ræna nálgun og víð­tækt sam­ráð, þar á meðal við félags­mála­yf­ir­völd.

Emb­ættið segir það til bóta að í frum­varp­inu er tekið til­lit til þeirra áhrifa sem breyt­ing­arnar geta haft svo hægt sé að áætla afleið­ingar þeirra. Er það meðal ann­ars gert með að leggja til stofnun starfs­hóps til að fylgj­ast með hugs­an­legum áhrifum og ávinn­ingi breyt­ing­anna.

Afglæpa­væð­ing ekki krafta­verk

Á sama tíma gerir emb­ættið athuga­semdir við að hvergi í frum­varp­inu komi skýrt fram til­laga eða áætlun um auknar for­varn­ir. Í umsögn­inni er vísað í afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í Portú­gal þar sem gerð var lang­tíma­á­ætlun og metn­að­ar­fullar fjár­fest­ingar í heil­brigð­is­þjón­ustu ásamt umfangs­mik­illi heild­rænni stefnu. Vísar emb­ættið í orð Joao Gou­lao, sem fór fyrir til­lög­unni í Portú­gal, sem sagði afglæpa­væð­ingu ekki krafta­verk. „Ef þú gerir aðeins það, þá versnar ástand­ið“.

Emb­ættið bendir einnig á stuttan und­ir­bún­ings­tíma þar sem lögin eiga að taka gildi 1. júní næst­kom­andi.

Þá leggur emb­ættið til að breyt­ing­arnar verði ekki inn­leiddar nema sem hluti af opin­berri stefnu um mála­flokk­inn, annað hvort í upp­færðri Stefnu í áfeng­is- og vímu­vörn­um, sem rann út árið 2020, eða í nýrri stefnu.

Emb­ættið leggur því til að skip­aður verði hópur sér­fræð­inga sem fer á heild­rænan hátt yfir mála­flokk­inn og skili af sér til­lögum um aðgerðir eða heild­rænni stefnu þar sem fram kemur ítar­leg aðgerða­á­ætlun sem tekur til allra þátta vímu­efna­vand­ans, allt frá for­vörn­um, með­ferðar og sam­fé­lags­legrar aðlög­un­ar. „Þetta verði gert án taf­ar,“ segir í umsögn emb­ætt­is­ins og eru sér­fræð­ingar þess reiðu­búnir að vera til ráð­gjafar um áform­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent