Engin fyrirheit gefin um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum

Í svari við fyrirspurn á þingi segir forsætisráðherra að hún hafi ekki gefið Björk Guðmundsdóttur nein fyrirheit um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna árið 2019.

Björk Guðmundsdóttir og Katrín Jakobsdóttir ræddust við í síma í september 2019. Forsætisráðherra segist hvergi hafa gefið fyrirheit um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.
Björk Guðmundsdóttir og Katrín Jakobsdóttir ræddust við í síma í september 2019. Forsætisráðherra segist hvergi hafa gefið fyrirheit um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki hafa gefið Björk Guð­munds­dóttur tón­list­ar­konu nein fyr­ir­heit um að gefa frá sér form­lega yfir­lýs­ingu um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum í sam­skiptum þeirra á milli sem fram áttu sér stað í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York árið 2019.

Katrín sagð­ist hins vegar ætla að ræða málið við sam­ráð­herra sína. Frá þessu segir í svari for­sæt­is­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn frá Jóhanni Páli Jóhann­syni þing­manni Sam­fylk­ing­ar, sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Björk gaf í skyn, í við­tali við breska blaðið Guar­dian í ágúst­mán­uði, að hún og Greta Thun­berg hefðu vænst þess að Katrín lýsti yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum í ræðu sinni á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Ég eig­in­­lega treysti henni, kannski vegna þess að hún er kona, en svo fór hún og flutti ræðu og sagði ekk­ert. Hún minnt­ist ekki einu sinni á þetta. Ég varð fokreið, þar sem ég hafði verið að skipu­­leggja þetta í marga mán­uð­i,“ sagði Björk við Guar­di­an.

SMS frá Björk til for­sæt­is­ráð­herra

Fram kemur í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra að erindið frá Björk til for­sæt­is­ráð­herra hafi borist með SMS-skila­boðum í síma Katrín­ar, þann 6. sept­em­ber 2019. „Ráð­herra svar­aði sam­dæg­urs með smá­skila­boðum og síðan rædd­ust þær við í síma í fram­haldi af því. Eftir sím­talið sendi Björk for­sæt­is­ráð­herra nokkur smá­skila­boð dag­ana 19., 22. og 23. sept­em­ber. Ráð­herra sendi ein skila­boð 19. sept­em­ber. Í öllum til­fellum voru þessi sam­skipti við Björk Guð­munds­dóttur og var for­sæt­is­ráð­herra aldrei í sam­skiptum við Gretu Thun­berg,“ segir í svar­inu.

Auglýsing

Í svari ráð­herra er vikið að því að Björk hafi talið mik­il­vægt að for­sæt­is­ráð­herra lýsti í ræðu sinni á fund­inum yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum af hálfu Íslands og Norð­ur­landa. „Af hálfu ráð­herra kom fram að hún myndi ræða málið við sam­ráð­herra sína en engin fyr­ir­heit voru gefin um form­lega yfir­lýs­ing­u,“ segir í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni.

Þar er nánar rakið að í „sam­skiptum for­sæt­is­ráð­herra við Björk Guð­munds­dóttur voru engin fyr­ir­heit gefin um form­lega yfir­lýs­ingu af hálfu ráð­herra, rík­is­stjórnar eða Alþingis um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­mál­um“ og jafn­framt segir að í ræð­unni á fyrr­nefndu þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna hafi for­sæt­is­ráð­herra sagt að eng­inn velkt­ist í vafa um það lengur að heim­ur­inn stæði frammi fyrir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­mál­um.

„Eftir umræðu á vett­vangi rík­is­stjórnar um lofts­lags­mál var það nið­ur­stað­an, eftir póli­tískt sam­ráð, að betur færi á því að láta verkin tala og leggja áherslu á að ná árangri með raun­hæfum og nauð­syn­legum aðgerðum í lofts­lags­málum en að nálg­ast við­fangs­efnið með yfir­lýs­ingu af þessu tagi sem væri tákn­ræn í eðli sínu og hefði ekki sjálf­krafa áhrif á aðgerðir gegn lofts­lags­vánni. Þá var málið rætt í óform­legum sam­tölum nor­rænna for­sæt­is­ráð­herra en lofts­lags­mál höfðu verið aðal­efni fundar þeirra hér á landi í ágúst sama ár og hafði verið tölu­verð umræða allt árið 2019 um gagn­semi slíkra yfir­lýs­inga alls staðar á Norð­ur­lönd­um,“ segir í svar­inu frá ráð­herra.

Jóhann Páll spurði einnig að því hvort Katrín hefði hvatt Björk og Gretu til að hætta við að halda blaða­manna­fund þar sem kraf­ist yrði yfir­lýs­ingar um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­mál­um, eins og Björk lét að liggja í við­tali í þætt­inum Víð­sjá á RÚV undir lok sept­em­ber.

Í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra segir að í sam­skiptum Katrínar við Björk hafi komið fram að til stæði skora opin­ber­lega á for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­landa að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­mál­um.

„For­sæt­is­ráð­herra hvatti ekki til þess að hætt yrði við slíkt en upp­lýsti um að þessi mál hefðu verið og væru til umræðu við rík­is­stjórn­ar­borð­ið,“ segir í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent