Enginn ráðherra viðstaddur lokaatkvæðagreiðslu um stjórnarfrumvarp

Ekki einn einasti ráðherra var viðstaddur afgreiðslu stjórnarfrumvarps um veirustyrki til veitingamanna. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks skýrði frá því að ráðherrar hefðu verið boðaðir of seint til atkvæðagreiðslunnar.

Ráðherrabekkurinn í þinghúsinu var alveg galtómur í dag, er greidd voru atkvæði um styrki til veitingamanna.
Ráðherrabekkurinn í þinghúsinu var alveg galtómur í dag, er greidd voru atkvæði um styrki til veitingamanna.
Auglýsing

Alþingi sam­þykkti í dag frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um styrki til rekstr­ar­að­ila í veit­inga­geir­an­um. Allt tóku 36 þing­menn þátt í atkvæða­greiðslu um þetta frum­varp í dag, 18 stjórn­ar­liðar og 18 stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn. Eng­inn ráð­herra var við­staddur atkvæða­greiðsl­una.

Þetta vakti athygli og gagn­rýndu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn fjar­veru ráð­herra harð­lega þegar atkvæða­greiðslan var að baki og kvöddu sér hljóð undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

Til skammar, vand­ræða­legt og hluti af stærri mynd

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ingar sagði til „há­bor­innar skammar“ að engir ráð­herrar hefði við­staddir og Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar sagði að „þessi van­virð­ing, að hér mæti ekki einn ráð­herra við atkvæða­greiðslu,“ væri ekki van­virð­ing við stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn, heldur van­virð­ing við Alþingi.

Andrés Ingi Jóns­son þing­maður Pírata sagði vand­ræða­legt að „horfa á galtóma ráð­herra­bekki“ þegar verið væri að sam­þykkja stjórn­ar­frum­varp. Hann vakti athygli á því að sjö stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hefðu verið fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una en alls 21 stjórn­ar­liði. Þetta lýsti lít­ils­virð­ingu gagn­vart almenn­ingi, Alþingi og „öllum verkum rík­is­stjórn­ar­innar lík­a.“

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar sagði þetta hluta af stærri mynd og sagði að sökum þess að fjár­mála­ráð­herra gat ekki flutt frum­varp sitt um við­spyrnu­styrki í síð­ustu viku væri útlit fyrir að það frum­varp yrði ekki afgreitt úr þing­inu fyrr en eftir kjör­dæma­viku.

Auglýsing

„Styrkirnir munu ekki skila sér fyrr en eftir margar margar vik­ur, ef ekki mán­uði. Það að ráð­herrar geti ekki einu sinni sýnt fólk­inu sem er verið að styðja við þá virð­ingu að vera hérna með okkur inni í salnum og greiða atkvæði um þetta mál, það er hálf ömur­legt fram­hald af þessu sem ég var að nefna,“ sagði Jóhann Páll.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins sagði þetta sýna „svart á hvítu hvernig rík­is­stjórnin tekur á sínum eigin mál­u­m“.

Óli Björn tók á sig sök­ina

Óli Björn Kárason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. Mynd: Bára Huld Beck.

Óli Björn Kára­son þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins kvað sér síðan hljóðs og sagði að það væri ekki óeðli­legt að það væru gerðar athuga­semdir við að það hefðu engir ráð­herrar verið við­staddir atkvæða­greiðsl­una, en hann útskýrði síðan að það væri á hans eigin ábyrgð og ann­arra tengiliða þing­flokk­anna við ráð­herra­lið­ið.

„Ég verð hins­vegar að taka þann kaleik og drekka hann. Ég stóð í þeirri trú að atkvæða­greiðslan yrði kl. 14:30. Ég gaf mínum ráð­herrum og ég veit að félagar mínir í Fram­sókn­ar­flokki og VG gáfu sínum ráð­herrum þessar upp­lýs­ingar einnig. Það er nú ekki meira um það að segja, en svona er þetta og það er alveg ljóst að ráð­herr­arnir þurfa líka að sinna sínum emb­ætt­is­skyld­um, eru störfum hlaðnir og ætl­uðu að mæta hérna 14:30, það er segja, þeir sem á annað borð voru ekki ann­ars­stað­ar,“ sagði Óli Björn.

Logi Ein­ars­son steig að því loknu aftur í ræðu­stól og kall­aði eftir því að ráð­herrar fengju, eins og aðrir þing­menn, SMS með upp­lýs­ingum um tíma­setn­ingar atkvæða­greiðslna, svo þeir þyrftu ekki að treysta á hátt­virtan þing­mann Óla Björn í þessum efn­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent