Evrópu allri stefnt í hættu með árás á kjarnorkuver

Rússneskar hersveitir hafa náð Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu, stærsta kjarnorkuveri Úkraínu sem og allrar Evrópu, á sitt vald. Eldur kviknaði í kjarnorkuverinu í árásinni í nótt og hafa Rússar verið sakaðir um kjarnorkuhryðjuverk.

Rússneskar hersveitir eru sagðar hafa vísvitandi látið stórskotahríð dynja á Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í nótt.
Rússneskar hersveitir eru sagðar hafa vísvitandi látið stórskotahríð dynja á Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í nótt.
Auglýsing

Rúss­neskar her­sveitir eru sagðar hafa vís­vit­andi látið stór­skota­hríð dynja á Zaporizhzhi­a-kjarn­orku­ver­inu í Úkra­ínu í nótt. Eldur kvikn­aði í rann­sókn­ar­stofu sem og bygg­ingu við kjarn­orku­verið sem notuð er til þjálf­unar starfs­fólks, og log­aði hann klukku­stundum saman áður en tókst að slökkva hann.

Þó tek­ist hafi að ráða nið­ur­lögum elds­ins og að kjarna­ofnar vers­ins séu ekki taldir í hættu er málið litið mjög alvar­legum aug­um. Um að ræða fyrsta atvikið þar sem ráð­ist hefur verið á kjarn­orku­ver í stríði með þessum hætti sam­kvæmt Volodímír Zel­en­­skí, for­seta Úkra­ínu, sem sakar Rússa um kjarn­orku­hryðju­verk.

Auglýsing

Starfs­fólk kjarn­orku­vers­ins er enn að störfum og gætir öryggis þess. Aukin geisla­virkni hefur ekki mælst í nágrenni vers­ins enn sem komið er, en búið er að skrúfa niður í starf­semi kjarnakljúfa vers­ins og getur það leitt til þess að tals­verð geisla­virkni leki út í umhverf­ið, að því er fram kemur í umfjöllun Guar­dian. Sé ekki vel að gætt gæti orðið kjarn­orku­slys á stærð við það sem gerð­ist í Tsjernóbil, ef ekki stærra.

Fram­kvæmda­stjóri Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, Jens Stol­ten­berg, hefur for­dæmt kæru­leysi Rússa í árásinni og krefst þess að þeir leggi niður vopn.

Þá hefur Boris Johns­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, kallað eftir neyð­ar­fundi í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna máls­ins, en í til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herr­ans sakar hann Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta um að stofna allri Evr­ópu í hættu með árásinni á kjarn­orku­ver­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent