Fann Þorsteinn tæpa tíu milljarða króna í viðbót sem runnu til leiðréttra?

14404332782_ca116993e7_b.jpg
Auglýsing

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, þurfti að þola miklar háðs­glósur þegar hann var fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að ríkið kann­aði mögu­leika þess að byggja áburð­ar­verk­smiðju. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni sagði m.a.: „Brýn þörf er á að skapa ný vel launuð störf hér á landi til að vinna bug á atvinnu­leysi, til að laða brott­flutta Íslend­inga aftur heim og til að vekja ungum Íslend­ingum von í brjósti um að stjórn­völd ætli sér að skapa þeim tæki­færi og atvinnu­ör­yggi í fram­tíð­inn­i."

Þor­steinn lét það ekki stöðva sig og lagði til­lög­una aftur fram á haust­þingi 2014 og sýndi þar með stað­festu hug­sjóna sinna gagn­vart umræð­unni. Hann hefur líka, líkt og margir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, verið mjög umhugað um að allir skilji hversu stór­kost­leg aðgerð leið­rétt­ing­in, nið­ur­færsla á fast­eigna­skuld­um, sé. Til þess að koma þeim skila­boð­um, og þeirri hug­sjón, á fram­færi hafa þeir flutt fjöl­margar ræður í þing­inu og skrifað blaða­greinar af miklum móð.

Þor­steinn flutti eina slíka ræðu í vik­unni. Þar gerði hann lítið úr því að 1.250 heim­ili sem hefðu greitt auð­legð­ar­skatt hefðu fengið 1,5 millj­arð króna í leið­rétt­ingu og benti á að það þýdd­i „að það eru 55.800 heim­ili sem skipta með sér um 88,5 millj­örð­u­m". Hann end­ur­tók þessa full­yrð­ingu í grein í Frétta­blað­inu í gær­morg­un. Þar stóð: „Þannig hefur nokkuð farið fyrir því í fjöl­miðlum að 1.250 heim­ili sem greiddu auð­legð­ar­skatt fengu 1,5 millj­arða í leið­rétt­ingu. Það þýðir að 55.800 heim­ili skiptu með sér rúmum 88 millj­örð­u­m".

Auglýsing

Sam­kvæmt nýbirtri skýrslu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um leið­rétt­ing­una og ­sam­kvæmt öllum kynn­ing­ar­fund­unum sem haldnir hafa verið um aðgerð­ina er heild­ar­um­fang hennar 80 millj­arðar króna. Því er eðli­legt að velta því fyrir sér hvernig Þor­steinn fær það út, og segir frá í ræðu og rit­i, að umfangið séu tæpir 90 millj­arðar króna. Kannski veit hann eitt­hvað sem við hin vitum ekki?

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None