Félagsmenn VR, LÍV og Flóabandalagsins greiða atkvæði um verkföll

HotelBorg.jpg
Auglýsing

Félags­menn í VR, aðild­ar­fé­lögum Lands­sam­bands íslenskra verzl­un­ar­manna og Flóa­banda­lags­ins, sem eru Efl­ing, Hlíf og VSFK, munu greiða atkvæði um hvort hefja skuli verk­föll í lok mán­að­ar­ins. For­menn félag­anna hafa sent frá sér sam­eig­in­lega til­kynn­ingu um þetta.

Ef af verður verða verk­föll hjá hóp­bíla­fyr­ir­tækj­um, hót­el­um, gisti­stöðum og bað­stöð­um, í flug­afgreiðslu, hjá skipa­fé­lögum og mat­vöru­versl­unum og olíu­fé­lög­um. Verk­föllin verða fyrst tveggja daga verk­föll í til­teknum atvinnu­greinum og svo ótíma­bundið frá 6. júní.

„Fé­lögin hafa und­an­farna mán­uði reynt að ná sátt við atvinnu­rek­endur um grund­völl nýrra kjara­samn­inga en árang­ur­inn hefur verið rýr. Öll stétt­ar­fé­lögin vís­uðu deilum sínum til rík­is­sátta­semj­ara þann 17. apríl síð­ast­lið­inn. Þrátt fyrir milli­göngu hans hafa við­ræður reynst árang­urs­lausar og var þeim öllum slitið undir lok apr­íl“ segir í til­kynn­ingu félag­anna. Nú sé því boðað til atkvæða­greiðslu um verk­föll, og mun atkvæða­greiðsl­unni ljúka 20. maí og verði verk­föll sam­þykkt hefj­ast þau þann 28. maí.

Auglýsing

„En við­brögð atvinnu­rek­enda gagn­vart sann­gjörnum kröfum okkar eru slík að við eig­um engra ann­arra kosta völ. Atvinnu­rek­endur hafa ekki sýnt vilja til að koma við­ræðum í þann far­veg að þær skili árangri. Þær aðgerðir sem við greiðum nú atkvæði um eru þannig eina leið okkar til að knýja á um breyt­ing­ar,“ segja for­menn félag­anna. Þeir telja að stuðn­ingur við fyr­ir­hug­aðar aðgerðir sé víð­tækur og almennur meðal félags­manna.

For­menn­irnir segja að á síð­ustu miss­erum hafi verið mörkuð ný stefna í kjara­málum sem valdi því að ójöfn­uður hafi auk­ist. „Við lögðum okkar af mörkum við gerð síð­ustu kjara­samn­inga og sýndum ábyrgð. Við öxlum hins vegar ekki ein ábyrgð á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði. Það dugar skammt að lýsa yfir góð­æri, ef ávinn­ingar stöð­ug­leika eiga ein­ungis að falla í skaut at­vinnu­rek­enda en launa­fólki verði ein­ungis skammt­aðar lág­marks­hækk­an­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None