Féllst á annað sætið en fékk ekki afsökunarbeiðni: „Því fór sem fór“

Benedikt Jóhannesson fyrrverandi formaður Viðreisnar segir rangt að hann hafi hafnað 2. sæti á lista flokksins. Þvert á móti hafi hann fallist á beiðnina, en einnig gert kröfu um afsökunarbeiðni, sem hafi ekki verið í boði.

Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra og fyrsti formaður Viðreisnar.
Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra og fyrsti formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar segir að það sé rangt sem Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir núver­andi for­maður flokks­ins sagði við mbl.is fyrr í dag, að hann hefði hafnað því að taka 2. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur.

„Þvert á móti féllst ég á þá beiðni for­manns­ins,“ segir Bene­dikt, en útskýrir síð­an, í færslu á Face­book, að hann hafi talið það „eðli­legt og nauð­syn­legt að áður yrði gert út um þau leið­inda­mál sem hófust á ákvörðun upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins að bjóða mér neðsta sæti list­ans.“

Bene­dikt óskaði þannig eftir því að fá afsök­un­ar­beiðni frá þeim sem hefðu komið fram við hann með „óvið­ur­kvæmi­legum hætti“ í þessu máli.

„Ég tók fram að þetta væri ein­ungis til þess að ljúka þessum málum af minni hálfu og leggja grunn að góðu sam­starfi. Ég myndi ekki gera þær afsak­anir opin­ber­ar. Þor­gerður svar­aði eftir umhugsun að slík per­sónu­leg afsök­un­ar­beiðni væri ekki í boði. Því fór sem fór,“ segir Bene­dikt í færslu sinni á Face­book.

Hann seg­ist hafa átt ýmis sam­töl við for­mann flokks­ins, en þau hafi verið sam­mála um að hafa öll sam­skipti þeirra á milli trún­að­ar­mál. „Ástæða þess að ég tala nú um þessi mál er að Þor­gerður kýs að ræða þau opin­ber­lega,“ skrifar Bene­dikt.

Auglýsing

Í við­tali við mbl.is í dag sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir að Bene­dikt hefði ekki þegið sæt­ið, eftir að hafa verið boðið það. Ekki sagði þar að hann hefði þáð boð­ið, en gert kröfu um afsök­un­ar­beiðni, eins og hann sjálfur segir frá.

„Áður en upp­­still­ing­­ar­­nefnd­in skil­aði inn lista var rætt við Bene­dikt og hon­um boðið annað sæti í öðru Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæm­inu sem hann þáði ekki,“ sagði Þor­­gerður Katrín við mbl.­is.

For­maður Við­reisnar segir á mbl.is að ég hafi hafnað 2. sæti á lista flokks­ins. Þetta er rangt. Þvert á móti féllst ég á...

Posted by Bene­dikt Jóhann­es­son on Thurs­day, May 27, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent