FÍB segir borgina hafa tekið íbúa og bíla í gíslingu á Menningarnótt

marathon-reykjavik.jpg
Auglýsing

Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda, FÍB, sakar borg­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík um að taka „íbúa mið­bæj­ar­ins í gísl­ingu í tæpan sól­ar­hring og taka bif­reiðar langt að kom­inna úthverf­is­búa í gísl­ingu“ á Menn­ing­arnótt. Þetta er gert í grein á vef­síðu félags­ins, sem segir að borg­ar­yf­ir­völd vilji gera bíla útlæga og að fólk lifi líf­inu án bíla.

Til­efnið er að ákveðið var að hafa stóran hluta mið­bæj­ar­ins lok­aðan fyrir bíla­um­ferð á Menn­ing­arnótt, líkt og tíðkast hefur und­an­farin ár. Fréttir hafa borist af því að um þús­und bílum hafi verið lagt ólög­lega og því fengið sektir fyrir stöðu­brot.

FÍB segir að með þessu hafi íbúar í mið­bænum verið „læstir inni“ og verið bannað að nota heim­il­is­bíla sína „þótt líf lægi við“. Þá hafi íbúar úthverf­anna fengið svipað vald­boð. „Þeim var ýmist sagt að ganga, hjóla eða taka stræt­is­vagna til að kom­ast í mið­bæ­inn, eða koma á bílnum á til­tekna staði þar sem þeir gætu lagt bílum sínum í stæði og tekið strætó sein­asta spöl­inn í mið­bæ­inn.“ FÍB heldur því fram að þessi stæði hafi fyllst fljótt og „sam­visku­samir úthverfa­bú­ar“ sem hafi lagt ólög­lega hafi fengið að kenna á því með háum sekt­um. „Ekk­ert hafði verið gert í því að mæta því aug­ljósa og skil­greina tíma­bundin bíla­stæði á opnum svæðum við útjaðra mið­bæj­ar­ins.“

Auglýsing

Vel kynnt lokun



Allar þær götur sem voru lok­aðar fyrir bíla­um­ferð á Menn­ing­arnótt í ár voru líka lok­aðar í fyrra. Reykja­vík­ur­borg kynnti lok­an­irnar fyrir öllum íbúum mið­borg­ar­innar með því að senda þeim bréf heim í vik­unni fyrir Menn­ing­arnótt, auk þess sem nokkrar fréttir voru skrif­aðar um málið á vef­síðu borg­ar­innar og vef­síðu Menn­ing­ar­nætur. Þá kynntu lög­reglan og fjöl­miðlar þessar lok­an­ir. Að sama skapi var kynnt að ókeypis yrði í stræt­is­vagna þennan dag, og að vagn­anir myndu aka lengur en venju­lega til að koma öllum heim eftir að dag­skrá lyki. Þá var einnig boðið upp á skutlur af stórum bíla­stæðum við Kirkju­sand og Borg­ar­tún.

Í við­tali við Frétta­blaðið í gær sagði Kol­brún Jón­atans­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Bíla­stæða­sjóðs, að um tíu starfs­menn sjóðs­ins hefðu skrifað sektir á Menn­ing­arnótt, sem er sami fjöldi og und­an­farin ár. Sekt­irnar urðu þús­und, sem er líka eins og síð­ustu ár. Hún sagð­ist ekki hafa heyrt af mörgum ósáttum öku­mönnum vegna þessa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None