Finna þarf jafnvægi í birtu og rými á milli húsa

Reykjavíkurborg vinnur að leiðbeiningum um birtuskilyrði og gæði á dvalarstöðum og í íbúðarhúsnæði.

Mikil uppbygging stendur til á Heklureitnum.
Mikil uppbygging stendur til á Heklureitnum.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg vinnur nú að leið­bein­ingum um birtu­skil­yrði til að bæta sam­ræmi milli rýmis og birtu á upp­bygg­ing­ar­svæðum borg­ar­inn­ar. Skil­greind eru við­mið og leiðir til útfærslu dval­ar­svæða sem eiga þátt í að móta umgjörð dag­legs lífs með nákvæm­ari hætti en áður. Til­gang­ur­inn er að auð­velda upp­bygg­ing­ar­að­ilum að gæta að gæðum bæði íbúða sem og rým­is­ins milli hús­anna.

Fjallað er um málið í Torg­inu, frétta­bréfi Skipu­lags­stofn­un­ar. Þar segir að til­gangur verk­efn­is­ins rími vel við mark­mið Aðal­skipu­lags Reykja­víkur um að stuðla að vellíðan íbúa, efla virkni og félags­legt sam­neyti íbúa og virkja og styrkja grænar teng­ingar borg­ar­inn­ar.

Ásta Loga­dótt­ir, verk­fræð­ing­ur, og Anna María Boga­dótt­ir, arki­tekt, hafa unnið að leið­bein­ing­un­um. Leið­ar­ljósið er að draga fram skýra mynd af kröfum um skugga­varp og lág­mark birtu á dval­ar­svæð­um. Þannig á hinn almenni borg­ari að hafa betri til­finn­ingu fyrir því hvernig rýmið milli húsa verður og hönn­uðir hvar er heppi­leg­ast að hafa leik­svæði fyrir börn og svalir á bygg­ing­um, svo eitt­hvað sé nefnt.

Auglýsing

Ásta sagði í sam­tali við RÚV í maí að hún hefði áhyggjur af bygg­ing­ar­magni á svoköll­uðum Heklu­reit en þar á að reisa allt að 463 íbúð­ir. Húsin yrðu hæst sjö hæð­ir. Þröngar götur yrðu á milli sumra háhýsanna.

„Ég er alveg með áhyggjur af bygg­inga­magn­inu. Og við erum að sjá að það er að þétt­ast og hækka. Þannig að þetta er eitt­hvað sem við þurfum að taka alvar­lega og við þurfum að finna okkur aðferðir til þess að passa upp á gæðin í umhverf­inu okk­ar,“ sagði Ásta við RÚV. Dokt­ors­verk­efni hennar fjall­aði um lýs­ingu og hefur hún veitt ráð­gjöf í þeim efn­um.

Byggt til langrar fram­tíðar

Borg­hildur Sturlu­dótt­ir, deild­ar­stjóri deiliskipu­lags hjá Reykja­vík­ur­borg, hefur haft umsjón með birtu­verk­efn­inu sem nú er í vinnslu. „Við þurfum að finna jafn­vægið eða gæðin sam­an, sem ríki og borg og sem borg­arar og upp­bygg­ing­ar­að­il­ar,“ segir hún í Torg­inu. „Jafn­vægi í birtu og rými á milli húsa svo eitt­hvað sé nefnt. Því við erum að byggja til 100 ára, mögu­lega lengur og því þurfum við að vanda til verka. Annað væri óábyrgt gagn­vart umhverf­inu, borg­inni okkar og kom­andi kyn­slóð­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent