„Fitty“ segist ekki hafa beðið tengdapabba um að redda Samherja kvóta í Namibíu

Tengdasonur fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu mætti aftur fyrir dóm í Namibíu í dag og hafnaði því þar að fjölskyldutengsl hans við ráðherrann hefðu verið það sem réði því að hann var fenginn til ráðgjafarstarfa fyrir Samherja í landinu.

Hér sjást Bernhard Esau (t.v.) og Tamson Hatuikulipi (t.h.) ráðfæra sig við lögmann sinn.
Hér sjást Bernhard Esau (t.v.) og Tamson Hatuikulipi (t.h.) ráðfæra sig við lögmann sinn.
Auglýsing

Tam­son „Fitty“ Hatuikulipi, einn sak­born­inga í Sam­herj­a­mál­inu í Namib­íu, vísar því á bug að hann hafi verið ráð­inn til þess að veita Sam­herja ráð­gjöf um kvóta­mál í land­inu sökum þess að hann er giftur dóttur Bern­hards Esau, sem áður var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins.

Þetta kom fram í máli Hatuikulipi fyrir dómi í Wind­hoek í Namibíu í gær, en þar héldu áfram rétt­ar­höld sem snú­ast um beiðni hans um að verða lát­inn laus úr fang­elsi gegn trygg­ingu, eftir um fimm vikna langt hlé.

Hatuikulipi hefur ásamt nokkrum öðrum sak­born­ingum í mál­inu setið í gæslu­varð­haldi allt frá því undir lok nóv­em­ber­mán­aðar árið 2019.

Auglýsing

Sam­kvæmt frétt mið­ils­ins Namibian hafn­aði Hatuikulipi því að hafa fengið tengda­föður sinn Esau til þess að útvega Sam­herja afla­heim­ildum í land­inu og hafn­aði því sömu­leiðis að hafa rætt inn­reið Sam­herja í namibískan sjáv­ar­út­veg við tengda­móður sína eða eig­in­konu. Þær hefðu ekk­ert komið nálægt störfum hans.

Full­trúi ákæru­valds­ins dró það hins vegar mjög í efa fyrir dómnum að nokkuð annað en fjöl­skyldu­tengsl við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann hefðu ráðið því að Hatuikulipi var feng­inn til ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Sam­herja.

Raunar sagði sak­sókn­ar­inn, sam­kvæmt end­ur­sögn mið­ils­ins New Era, að helsta teng­ing Hatuikulipi við sjáv­ar­út­veg­inn, áður en hann gift­ist dóttur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, hefði verið sú að borða fisk.

Sagði Jóhannes hafa spurt um brúð­kaupið að fyrra bragði

Rétt eins og Hatuikulipi kom á fram­færi fyrir dómi í júlí­mán­uði sagð­ist hann í gær fyrst hafa kom­ist í kynni við full­trúa Sam­herja á fundi á Hilton-hót­el­inu í Wind­hoek í des­em­ber árið 2011 og það hefði verið Jóhannes Stef­áns­son.

Hatuikulipi sagði að á næsta fundi með full­trúum Sam­herja, þar sem þeir Aðal­steinn Helga­son og Ingvar Júl­í­us­son hefðu einnig verið við­stadd­ir, hefði Jóhannes svo komið sér á óvart og spurt út í brúð­kaup hans og dóttur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, sem fram hafði farið í októ­ber 2011.

Einnig sagði hann að Jóhannes hefði óskað eftir því að fá að sjá myndir úr brúð­kaup­inu og hafn­aði því alfarið að hann hefði að sínu eigin frum­kvæði kynnt sig sér­stak­lega fyrir Íslend­ing­unum þremur sem tengda­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, eins og sak­sókn­ari sagði að Ingvar Júl­í­us­son hefði borið við í skrif­legri yfir­lýs­ingu sinni til rétt­ar­ins vegna dóms­máls­ins.

Sam­kvæmt frétt New Era var gert hlé á þing­hald­inu í gær eftir að ákæru­valdið bað um heim­ild til þess að leggja gögn fyrir dóminn, en verj­endur Hatuikulipi ósk­uðu eftir því að fá tíma til þess að ráð­færa sig við skjól­stæð­ing sinn um gögn­in. Dóm­þing­inu var því haldið áfram í dag, en frek­ari fréttir hafa ekki borist í helstu fjöl­miðlum Namibíu um fram­hald vitn­is­burð­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent