Fleiri myndu bjarga símanum frekar en kettinum í eldsvoða

15428316609-ba2479e6f1-k.jpg
Auglýsing

Meira en helm­ingur þeirra sem eiga snjall­síma halda í hann á meðan þeir sofa. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð var á snjall­síma­hegðun í sjö lönd­um. Alls tóku meira en 7.000 manns þátt. Fleiri mundu jafn­framt bjarga sím­anum í elds­voða áður en þeir hæfu leit að heim­il­is­k­ett­in­um, eða 54 pró­sent þeirra sem tóku þátt.

Könn­unin var gerð á inter­netn­inu meðal íbúa í Banda­ríkj­un­um, Bret­landi, Kína, Spáni, Mexíkó og Ind­landi af KRC Res­e­arch fyrir Motorola-raf­tækja­fram­leið­and­ann sem meðal ann­ars fram­leiðir síma. AFP-frétta­stofan greinir frá rann­sókn­inni.

Meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöð­unum var að 60 pró­sent þeirra sem tóku þátt sögð­ust sofa með snjall­sím­ann í hönd­un­um. Hæsta hlut­fall þeirra var í Ind­landi þar sem 74 pró­sent fólks sagð­ist sofa með sím­ann og í Kína þar sem 70 pró­sent svör­uðu svona.

Auglýsing

Hæsta hlut­fall þeirra sem taka sím­ann sinn með á kló­settið var í Kína og Bras­ilíu en séu öll löndin tekin með sögð­ust 57 pró­sent hafa sím­ann við hönd­ina er þeir tefla við páf­an. Þá sagð­ist einn sjötti baða sig með sím­ann sinn á sér.

Sam­band fólks við snjall­sím­ann virð­ist einnig vera nán­ara en maður skildi ætla, enda seg­ast 22 pró­sent svar­enda frekar vilja sleppa kyn­lífi yfir helgi í stað þess að hafa ekki aðgang að sím­anum sín­um. Þá segja 40 pró­sent snjall­síma­eig­enda sím­anum sínum leynd­ar­mál sem þau gæfu ekki upp gagn­vart bestu vinum sín­um.

Snjall­sím­arnir eru hins vegar ekki full­komn­ir. Meiri­hluti fólks, 74 pró­sent, þykir til dæmis sím­inn pirra sig þegar hann truflar á óheppi­legum augna­blik­um. Og þeir sem segj­ast ánægðir með snjall­sím­ann sinn voru aðeins 34 pró­sent svar­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None