Flúði Hvíta-Rússland með röntgenmyndir særðra rússneskra hermanna

Hvítrússneskur læknir sem hefur fengið hæli í Litáen ásamt fjölskyldu sinni lýsir því að hörmungarástand hafi verið á spítölum í suðurhluta Hvíta-Rússlands í upphafi innrásar Rússa í Úkraínu.

Hvítrússneski læknirinn er kallaður Andrei í umfjöllun CNN.
Hvítrússneski læknirinn er kallaður Andrei í umfjöllun CNN.
Auglýsing

Læknir frá borg­inni Mazyr í suð­ur­hluta Hvíta-Rúss­lands, sem flúði til Litáen með fjöl­skyldu sinni í upp­hafi sum­ars, segir að hví­trúss­neskum læknum í grennd við landa­mæri Úkra­ínu hafi verið gert að taka á móti miklum fjölda rúss­neskra her­manna á fyrstu dögum inn­rásar rúss­neska hers­ins í nágranna­landið í suðri.

Í við­tali við CNN segir lækn­ir­inn, sem kall­aður er And­rei í umfjöllun banda­ríska fjöl­mið­ils­ins til að vernda auð­kenni hans, að á borg­ar­spít­al­anum í Mazyr hafi læknum verið sagt að hafa 250 sjúkra­rúm laus undir rúss­neska her­menn við upp­haf inn­rás­ar­inn­ar, fresta skipu­lögðum skurð­að­gerðum og útskrifa hví­trúss­neska sjúk­linga ef kostur væri.

Hví­trúss­neski lækn­ir­inn segir að hol­skefla særðra her­manna hafi komið inn á fyrstu dögum inn­rás­ar­inn­ar, og að á milli 40 og 50 rúss­neskir her­menn farið inn og út af spít­al­anum á degi hverjum í upp­hafi mars­mán­aðar „eins og á færi­band­i“. Þangað hafi rúss­neskir her­menn einnig reynt að koma með látna félaga sína. „Þeir vissu ekki hvað þeir áttu að gera við þá.“

Hótað eft­ir­liti FSB

Læknum á spít­al­anum í Mazyr, sem sam­kvæmt umfjöllun CNN var einn að minnsta kosti þriggja spít­ala í Gomel-hér­aði í suð­ur­hluta lands­ins sem falið var að taka á móti særðum Rússum á fyrstu mán­uðum inn­rás­ar­inn­ar, var að sögn lækn­is­ins gert að skrifa undir þagn­ar­skyldu­samn­inga varð­andi þjón­ust­una sem þeir veittu rúss­neska her­lið­inu.

Þeim var strang­lega bannað að deila myndum og gögnum og hótað með því að rúss­neska leyni­þjón­ustan FSB væri með lækna­liðið undir eft­ir­liti og gæti fylgst með símum þeirra.

Auglýsing

Þrátt fyrir þetta ákvað hví­trúss­neski lækn­ir­inn að taka raf­ræn afrit af röntgen­myndum rúss­neskra her­manna, sem hann tók með sér á USB-kubbi sem hann faldi í leik­fangi dóttur sinnar á flótta fjöl­skyld­unnar til Litáen.

Það gerði hann til þess að hafa sönn­un­ar­gögn um þau verk sem hví­trúss­neskum læknum var falið að sinna í þágu rúss­neska hers­ins í upp­hafi stríðs­ins, sem lítið hefur heyrst af til þessa þrátt fyrir að Aleksandr Lukashenko for­seti lands­ins hafi við­ur­kennt strax í byrjun inn­rás­ar­innar að særðir rúss­neskir her­menn hefðu verið fluttir á spít­ala í suð­ur­hluta lands­ins.

Ótt­að­ist að verða sendur á víg­völl­inn

And­rei var hand­tek­inn í lok mars, ásamt fleiri þar­lendum læknum og sak­aður um spill­ingu og mútu­þægni. Það segir hann upp­lognar sakir, til þess fallnar að ógna lækn­unum og sýna þeim hvað gæti beðið þeirra ef þeir reyndu að fara úr landi.

Hann var vistaður í fang­elsi í höf­uð­borg­inni Minsk í einn og hálfan mánuð og ákvað í kjöl­far­ið, eftir að hafa verið beð­inn um að skrá sig í hví­trúss­neska her­inn, að kom­inn væri tími á að flýja heima­landið – enda byrj­aður að ótt­ast að stuðn­ingur hví­trúss­neskra yfir­valda við stríð Pútíns í Úkra­ínu myndi á end­anum leiða til þess að hví­trúss­neskir læknar eins og hann yrðu sendir á víg­völl­inn til að hjúkra rúss­neska inn­rás­ar­lið­inu.

Sam­kvæmt því sem kemur fram í umfjöllun CNN er talið að mun fleiri rúss­neskir her­menn hafi verið fluttir særðir eða látnir til Hvíta-Rúss­lands í upp­hafi inn­rás­ar­innar í Úkra­ínu en stjórn­völd þar hafa viljað meina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent