Formaður FRÍ vill að maraþonmálið verði rætt innan sambandsins

33kmB-m06-1.jpg
Auglýsing

Einar Vil­hjálms­son, nýkjör­inn for­maður Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ), telur að mara­þon­málið svo­kall­aða, þar sem Arnar Pét­urs­son Íslands­meist­ari karla í mara­þoni var sak­aður um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu sem fram fór í lok sum­ars, verð­s­kuldi frek­ari umræðu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­inn­ar. Hann hyggst vísa mál­inu til frek­ari umræðu innan við­eig­andi fasta­nefnda FRÍ og fela fram­kvæmda­stjóra sam­bands­ins að óska eftir áliti þeirra ­fyrir næsta stjórn­ar­fund sam­bands­ins.

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem Einar sendi Lind Freyju­dótt­ur, sam­býl­is­konu hlauparans Pét­urs Sturlu Bjarna­son­ar, í dag. Hún lagði fram kæruna á hendur Arn­ari Pét­urs­syni, í umboði sam­býl­is­manns síns, og sak­aði Arn­ar um brot á reglum mara­þons­ins með því að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, sem heyrir undir Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) sem ann­ast fram­kvæmd hlaups­ins, við­ur­kenndi í úrskurði sínum að reglur mara­þons­ins hafi verið brotnar en taldi ósannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna. Þá hafi sigur hans í hlaup­inu verið það afger­andi að fylgd hjól­reiða­mann­anna hefði ekki haft áhrif á úrslit hlaups­ins, en Arnar var rúmum níu mín­útum á undan næsta Íslend­ingi í enda­mark­ið, sem var áður­nefndur Pétur Sturla.

Auglýsing

Kærendur kærðu nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar til dóm­stóls ÍSÍ sem stað­festi nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­inn­ar. Nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ var þá áfrýjað til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ sem tók málið ekki til efn­is­legrar með­ferðar sökum form­galla á kærunni sem send var dóm­stóli ÍSÍ. Það er athygl­is­vert fyrir þær sakir að dóm­stóll ÍSÍ tók málið til efn­is­legrar með­ferðar þrátt fyrir ann­marka á kæru máls­ins.

Lind Freyju­dóttir hyggst ekki kæra málið aft­ur, en hún sendi Ein­ari Vil­hjálms­syni, for­manni FRÍ bréf þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar krafði hún for­mann FRÍ um afstöðu hans í mál­inu með vísan í siða­reglur FRÍ, þar sem meðal ann­ars er kveðið á um að íþrótta­fólk virði alltaf reglur og venjur varð­andi heið­ar­leika (Fair Play) í íþrótt­um, og fari ætíð að keppn­is­regl­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None