Framsóknarmenn fúlsa við grænmetisfæði á jólum

Flestir landsmenn ætla að borða hamborgarahrygg á aðfangadag en aðeins 4,4 prósent grænmetisfæði. En þegar rýnt er í könnun Maskínu á jólamatnum koma skemmtilegar (og pólitískar) tengingar í ljós.

Hægt er að töfra fram girnilega kjötlausa rétti fyrir hvert tækifæri.
Hægt er að töfra fram girnilega kjötlausa rétti fyrir hvert tækifæri.
Auglýsing

Rúm 43 pró­sent lands­manna ætla að borða Ham­borg­ar­hrygg á aðfanga­dags­kvöld sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu. Ham­borg­ar­hrygg­ur, sem er hryggur úr svíni, er því lang­vin­sæl­asti jóla­matur Íslend­inga líkt og verið hefur síð­ustu ár. Lamba­kjöt­ið, þar með talið hangi­kjöt, kemur þar á eftir en þó ætla aðeins um 15 pró­sent lands­manna að neyta þess. Fugla­kjöt er einnig nokkuð vin­sælt. Kalkúnn verður að öllum lík­indum á borðum tæp­lega 11 pró­sent lands­manna á aðfanga­dags­kvöld og 6,4 pró­sent ætla að borða rjúp­ur.

Þessar nið­ur­stöður koma ekki sér­stak­lega á óvart. Það sem hins vegar má segja að veki einna mesta athygli er að þessi jólin ætla 4,4 pró­sent lands­manna að borða græn­met­is­fæði, jafn­margir og hyggj­ast borða hrein­dýra­kjöt.

Nauta­kjöt og græn­met­is­fæði sækja á

Ham­borg­ar­hryggur nýtur yfir­gnæf­andi vin­sælda miðað við þetta en þó hafa þær dvínað nokkuð síð­ustu ár. Þannig sögðu um 53 pró­sent þátt­tak­enda í könnun árið 2010, eða fyrir rúmum tveimur ára­tug­um, að ham­borg­ar­hryggur yrði fyrir val­inu á aðfanga­dags­kvöld. Vin­sæld­irnar hafa því dalað um 10 pró­sent.

Auglýsing

Ekki er sér­stakur munur á vin­sældum ann­arra kjöt­teg­unda síð­ustu tvo ára­tugi en þó má sjá að lamba­kjöt annað en hangi­kjöt hefur sótt nokkuð í sig veðrið þótt mun­ur­inn frá árinu 2010 (8 pró­sent) og 2022 (11 pró­sent) sé vissu­lega ekki mik­ill. Sömu sögu er að segja um nauta­kjöt en 6 pró­sent lands­manna ætla að borða slíkt kjöt á aðfanga­dags­kvöld sam­an­borið við 2 pró­sent árið 2010.

Hástökkvar­inn hlýtur að vera græn­met­is­fæð­ið. Vissu­lega er fjöld­inn sem það hyggst borða í aðal­rétt á aðfanga­dags­kvöld enn ekki sér­stak­lega mik­ill en hann hefur þó farið úr 1 pró­senti árið 2010 í rúm 4 pró­sent í ár.

Og þegar rýnt er nánar í hverjir það eru sé ætla að borða græn­met­is­mat kemur áhuga­verð mynd í ljós.

Konur eru lík­legri til að velja græn­met­is­fæði á diskinn sinn á aðfanga­dags­kvöld. Um 7 pró­sent þeirra kjósa slíkt en aðeins 2 pró­sent karla. Þegar rýnt er í aldur þátt­tak­enda í könnun Mask­ínu kemur svo enn ein skýr birt­ing­ar­mynd fram því heil tíu pró­sent fólks yngra en 30 ára ætlar að borða græn­met­is­mat. Flestir sem velja græn­met­is­fæðið búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en fæstir (í raun eng­inn sem svar­aði könn­un­inni) á Vest­ur­landi, Vest­fjörðum og Aust­ur­landi.

Tekju­lægra fólk er lík­legra til að velja græn­met­is­mat sem skýrist sjálf­sagt af því að þetta er yngra fólk, margt enn í námi.

Sós­í­alistar velja græn­met­is­rétti

Að síð­ustu er eft­ir­tekt­ar­verð að skoða val á jóla­mat og stjórn­mála­skoð­an­ir. Þátt­tak­endur voru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Kjós­endur Flokks fólks­ins eru ekk­ert að flækja hlut­ina. Lang­flestir þeirra eða 63 pró­sent velja svína­kjöt­ið. Og eng­inn ætlar að borða græn­met­is­rétt.

Fram­sókn­ar­menn vilja einnig sitt svín eða lamb og eng­inn þeirra – 0 pró­sent – ætla að snæða græn­met­is­fæði á aðfanga­dags­kvöld. Svip­aða sögu er að segja af kjós­endum Mið­flokks­ins en það kemur þó skemmti­lega á óvart að 2 pró­sent þeirra kjósa græn­met­is­mat.

12 pró­sent kjós­enda Pírata ætla að fá sér græn­met­is­rétt en flestar græn­metisæt­urnar eru þó kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins en 17 pró­sent þeirra munu inn­byrða slíkan mat nú um jól­in. Aðeins ham­borg­ar­hrygg­ur­inn er vin­sælli í þessum hópi.

Allt þetta á við um aðfanga­dags­mál­tíð­ina en allt önnur mynd birt­ist á vin­sælda­lista jóla­dags­mat­ar­ins. Þar á hangi­kjötið skuld­laust vinn­ing­inn meðal kjöt­æt­anna því 63,7 pró­sent lands­manna ætla sam­kvæmt könn­un­inni að snæða slíkt. Græn­metisæt­urnar ætla að halda sínu striki því jafn­margar þeirra og reyndar ívið fleiri eða um 4,6 pró­sent ætla að borða græn­met­is­rétt á jóla­dag, rétt eins og á aðfanga­dag.

Um könn­un­ina

Könn­unin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks (e.pan­el) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá á net­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Svör voru vegin sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hag­stof­unnar um kyn, aldur og búsetu, þannig að þau end­ur­spegla þjóð­ina prýði­lega, segja rann­sak­endur Mask­ínu. Könn­unin fór fram frá 16. til 20. des­em­ber og voru svar­endur 967 tals­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent