Fylgi Framsóknar dregst saman um fjögur prósentustig á milli mánaða

Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu nartar Samfylkingin nú í hæla Framsóknar hvað fylgi á landsvísu varðar. Píratar dala ögn en Viðreisn og Vinstri græn mælast með meira fylgi en í ágústmánuði.

Fylgi Framsóknarflokksins hreyfist um fjögur prósent á milli mánaða í nýjustu mælingu Maskínu.
Fylgi Framsóknarflokksins hreyfist um fjögur prósent á milli mánaða í nýjustu mælingu Maskínu.
Auglýsing

Fylgi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn dregst saman um heil fjögur pró­sentu­stig á milli mán­aða, sam­kvæmt nýrri fylgiskönnun Mask­ínu sem birt er í dag. Flokk­ur­inn mæld­ist með 19,6 pró­senta fylgi í mæl­ingu fyr­ir­tæk­is­ins í ágúst, en fylgið mælist nú 15,6 pró­sent.

Á sama tíma bætir Sam­fylk­ingin við sig 2,3 pró­sentu­stigum frá síð­asta mán­uði og nartar í hæla Fram­sóknar með 15,2 pró­senta fylgi. Fylgi Sam­fylk­ingar hefur auk­ist um rúm fjögur pró­sentu­stig frá því í júlí, en þá mæld­ist fylgið 10,9 pró­sent.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er á svip­uðum slóðum og í síð­ustu mæl­ingu Mask­ínu, en flokk­ur­inn mælist með 20,8 pró­sent og er stærsti flokkur lands­ins sem fyrr.

Píratar en Við­reisn og Vinstri græn vinna á

Píratar mæl­ast með 12,3 pró­sent fylgi í þess­ari könnun en mæld­ust með 13,9 pró­sent í ágúst­mán­uði.

Á sama tíma bæta bæði Við­reisn og Vinstri græn við sig fylgi sem nemur rúmu pró­sentu­stigi á milli mán­aða og er fylgi Við­reisnar nú 10,4 pró­sent, en fylgi Vinstri grænna mælist 8,7 pró­sent.

Auglýsing

Sós­í­alistar enn stærri en tveir flokkar sem eiga sæti á þingi

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með ögn minna fylgi en í síð­asta mán­uði, eða 6,8 pró­sent.

Flokk­ur­inn, sem á engan full­trúa á þingi, er þannig með meira fylgi en bæði Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn, þrátt fyrir að báðir flokkar bæti við sig á milli mán­aða.

Fylgi Flokks fólks­ins mælist nú 5 pró­sent og fylgi Mið­flokks­ins 5,3 pró­sent.

Könnun þessi var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks (e.pan­el) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá, á net­inu. Svar­endur voru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Svör voru vegin sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hag­stof­unn­ar, þannig að úrtakið end­ur­speglar þjóð­ina prýði­lega. Við vigtun svara getur birst örlítið mis­ræmi í fjölda­tölum og hlut­föllum sem orsakast af námund­un.

Könn­unin fór fram dag­ana 16. til 27. sept­em­ber 2022 og voru 1.875 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent