Fyrrverandi biskup ver samviskufrelsi presta

9555631404_e663c5b735_z.jpg
Auglýsing

Mikil umræða hefur verið und­an­farið um svo­kallað sam­visku­frelsi presta, frelsi þeirra til að neita að gefa saman sam­kyn­hneigð pör. Krist­ján Valur Ing­ólfs­son, starf­andi biskup og vígslu­biskup í Skál­holti, hefur sagt að sam­visku­frelsi sé stjórn­ar­skrár­var­inn réttur og meðal dýr­mæt­ustu mann­rétt­inda. Þessu eru margir ósam­mála, meðal ann­ars prestar og Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, sem segir að prestar geti ekki neitað sam­kyn­hneigðum pörum um hjóna­vígslu á þessum grund­velli.

Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, biskup Íslands, hefur ekki tjáð sig um málið und­an­far­ið, en áður hefur komið fram að hún vilji að prestar geti neitað að gifta pör af sama kyni.

For­veri henn­ar, Karl Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi bisk­up, hefur hins vegar tjáð sig um þessi mál á Face­book. Það gerir hann í kald­hæðnu svari við færslu rit­höf­und­ar­ins Guð­mundar Andra Thors­son­ar, sem gagn­rýnir orða­lagið sam­visku­frelsi. „Að kenna svona for­pokun við sam­visku, slíka neitun við frelsi, er van­brúkun á tungu­mál­in­u,“ segir Guð­mundur Andri.

Auglýsing

"Já, sam­visku­frelsi manna hefur auð­vitað alltaf verið til óþurftar og truflað and­lega og ver­ald­lega vald­hafa á hverjum tíma sem hafa fundið sig knúna til að taka þau af sem hafa haft ein­hverjar sam­visku­skrúbl­ur. Allt of margir hafa í ald­anna rás látið líf­iið til að verja meint heilög vé sam­viskunn­ar, það er sann­ar­lega mál að linn­i," svarar Karl Guð­mundi Andra.

Screen Shot 2015-09-29 at 13.24.03

Gengur ekki að gera eigin for­dóma meiri en kær­leiks­boð­skap



Vig­fús Bjarni Alberts­son, sjúkra­húss­prestur á Land­spít­al­an­um, skrifar um málið á sína Face­book-­síðu í dag. Hann seg­ist ætla að berj­ast fyrir því „sem prest­ur, kirkju­þings­mað­ur, stjórn­ar­maður í Presta­fé­lagi Íslands, sem mann­eskja, að þetta hug­tak fái ekki stað­ist í þessu sam­hengi. Enn og aftur ætlar fámennur hópur að ógna sam­fylgd þjóðar og kirkju. Nei takk.“

Vig­fús er mjög gagn­rýn­inn á þá presta sem nota þetta hug­tak til að neita að fram­kvæma ákveðnar hjóna­vígslur og segir hug­takið sam­visku­frelsi ekki stand­ast skoð­un. „Þetta hug­tak stenst ekki út frá vígslu­rétt­indum presta. Flestir þeirra eru emb­ætt­is­menn og því skylt að þjóna fólki sem slík­ir.“ Það sé ekki hægt að neita fólki um þessi sjálf­sögðu mann­rétt­indi að ganga í hjóna­band. „Nema þeir vilji breyta þjóð­kirkj­unni í sér­trú­ar­söfn­uð, mjög fámennan söfn­uð, verði þeim að góð­u.“ Þá segir hann að það gangi ekki að ætla að taka kær­leiks­boð­skap Krists og gera eigin for­dóma meiri.





Sam­visku­frelsi er hug­tak, í sam­hengi hjóna­vígslu, sem örfáir prestar nota. Þetta hug­tak stenst ekki. Rökin eru...

Posted by Vig­fús Bjarni Alberts­son on Tues­day, Sept­em­ber 29, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None