Fyrrverandi fréttamaður á RÚV missti röddina eftir læknamistök

spitali_thorallur.jpg
Auglýsing

Þór­hallur B. Jós­eps­son, sem starf­aði um ára­bil sem frétta­maður hjá RÚV, er radd­laus eftir skurð­að­gerð sem hann gekkst undir í júlí­mán­uði þar sem ofvax­inn skjald­kirt­ill var fjar­lægð­ur.

Þór­hall­ur, sem nú starfar hjá Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna, hefur sent emb­ætti Land­lækn­is­ kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins, þar sem hann segir að Land­spít­ali hafi brotið á laga­rétti sínum til bestu heil­brigð­is­þjón­ustu sem völ er á með því að hafa ekki staðið rétt að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd aðgerð­ar­inn­ar.

Lífs­nauð­syn­leg aðgerð



Læknir send­i Þór­hall í umrædda aðgerð vegna ofvax­ins skjald­kirtils sem far­inn var að þrengja að önd­un­ar­vegi hans, en Þór­hallur hafði þá átt við mikla mæði að stríða að und­an­förnu. Eftir tölvu­sneið­mynda­töku var ákveðið að senda hann í aðgerð á Land­spít­al­ann, Göngu­deild 10E við Hring­braut. Læknir þar tók á­kvörðun um að fresta aðgerð­inni um rúma viku vegna blóð­þynn­ing­ar­lyfs sem Þór­hallur var á, svo áhrif þess gætu fyrst fjarað út.

Frest­un­in varð til þess að annar læknir fram­kvæmdi aðgerð­ina á Þór­halli, og fór hún fram 15. júlí síð­ast­lið­inn á Land­spít­al­anum við Hring­braut.

Auglýsing

Þegar Þór­hallur vakn­aði eftir aðgerð­ina komst hann fljót­lega að raunum um að rödd hans var far­in og var honum tjáð í kjöl­farið að taug í vinstra radd­bandið hefði klofnað í aðgerð­inni og til­raunir til að gera við hana hefðu ekki borið árang­ur.

Í kjöl­farið var Þór­hallur sendur til sér­fræð­inga á háls-, nef- og eyrna­deild Land­spít­al­ans í Foss­vogi. Þar gekkst hann tví­vegis undir bráða­birgða­að­gerðir í ágúst­mán­uði síð­ast­liðnum þar sem reynt var að lag­færa radd­band­ið, sem ekki báru árang­ur. Þór­hallur gekkst svo und­ir­ ­þriðju aðgerð­ina í nóv­em­ber.

Radd­miss­ir­inn valdið miklum óþæg­indum



„Sú aðgerð skil­aði þeim árangri að radd­böndin færð­ust sam­an, en röddin end­ur­heimt­ist ekki. Hef ég eftir það farið í nokkra tíma hjá tal­meina­fræð­ingi, en enn er þó engin rödd kom­in. Þótt ég geti myndað ein­hver hljóð, eiga þau ekk­ert skylt við þá rödd sem ég hafði áður,“ segir Þór­hallur B. Jós­eps­son í sam­tali við Kjarn­ann.

Hann segir radd­miss­inn hafa valdið sér miklum óþæg­ind­um. Fyrir utan almennt skert lífs­gæði sé ástandið sömu­leiðis mjög hamlandi í hans dag­legum störf­um. Þá muni hann að óbreyttu ekki gera fleiri sjón­varps- eða útvarps­þætti sem hafi verið hans ær og kýr und­an­farin ár er hann starf­aði sem frétta­maður á RÚV, en vorið 2014 ­samdi hann auk þess um gerð tólf sjón­varps­þátta fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN og náði að klára þrjá þeirra áður en hann missti rödd­ina.

Telur að brotið hafi verið á rétti sínum



Eins og áður segir hefur Þór­hallur sent emb­ætti land­læknis bréf þar sem hann segir farir sínar ekki slétt­ar. Bréfið var sent emb­ætt­inu þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar segir Þór­hallur að brotið hafi verið á laga­rétti sínum til bestu heil­brigð­is­þjón­ustu sem völ er á með því að vera sendur í aðgerð hjá Land­spít­al­anum á Hring­braut, þar sem ekki sé að finna sömu sér­fræði­þekk­ingu og þjálfun til aðgerða af því tagi sem hann gekkst und­ir.

Þá sé sömu­leiðis til staðar tækja­bún­aður hjá Land­spít­al­anum í Foss­vogi sem hefði getað komið í veg fyrir þann skaða sem hann varð fyr­ir. Þá gagn­rýnir hann að tækja­bún­að­ur­inn, sem sé lít­ill og með­færi­legur litlu stærri en far­tölva, hafi ekki verið færður úr Foss­vogi yfir á Hring­braut þar sem aðgerðin fór fram. Þór­hallur kveðst hafa fengið stað­fest að líkur á sam­bæri­legu óhappi og hann varð fyrir séu 41 pró­sent minni með notkun umrædds tækja­bún­að­ar.

Að öllu sam­an­lögðu telur Þór­hallur að Land­spít­al­inn hafi ekki farið rétt að við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar sem hann gekkst und­ir. Emb­ætti land­læknis hefur stað­fest mót­t­töku erindi Þór­halls, en ekk­ert form­legt svar við því hefur enn borist. Í sam­tali við Kjarn­ann kveðst Þór­hallur bíða nið­ur­stöðu land­lækn­is. Ekk­ert hafi verið ákveðið með fram­hald­ið, en ljóst sé að röddin hans komi ekki aft­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None