Fyrstu tölur í Reykjavík birtar um miðnætti

Beint streymi verður frá talningu atkvæða í borgarstjórnarkosningunum á laugardagskvöld. Ráðgert er að fyrstu tölur verði opinberar um miðnætti og að lokatölur liggi fyrir kl. 4.30 um nóttina. Utankjörfundaratkvæði verða talin síðust.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavíkurborg.
Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavíkurborg.
Auglýsing

Áætlað er að fyrstu tölur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík á laug­ar­dag verði opin­berar á mið­nætti, aðrar tölur kl. 3 og þær þriðju og síð­ustu klukkan 4.30 um nótt­ina. Atkvæði þeirra sem mæta fyrri hluta dags á kjör­stað verða talin fyrst og utan­kjör­fund­ar­at­kvæði síð­ust.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði yfir­kjör­stjórnar Reykja­víkur um helstu tíma­setn­ingar vegna taln­ingar í kosn­ing­un­um. Minn­is­blaðið var lagt fyrir fund kjör­stjórn­ar­innar í gær.

Kosið verður á 23 stöðum í Reykja­vík og að venju lýkur kjör­fundi klukkan 22. Þá þegar verður fjöldi kjör­kassa kom­inn í Laug­ar­dals­höll­ina þar sem taln­ing atkvæða fer fram. Taln­ingin getur því haf­ist á sama tíma og kjör­stöðum lokar sem ger­ist með því að odd­viti yfir­kjör­stjórnar rýfur inn­siglin á taln­ing­ar­staðnum í Höll­inni. Streymt verður beint af taln­ing­unni á vef Reykja­vík­ur­borg­ar.

Auglýsing

Í minn­is­blað­inu er gerð ítar­leg grein fyrir fyr­ir­komu­lag­inu. Þar segir að und­ir­bún­ingur fyrir taln­ingu atkvæða hefj­ist í Laug­ar­dals­höll kl. 17.00 á kjör­dag. Á milli 17.30-17.50 tekur yfir­kjör­stjórn á móti 96 atkvæða­kössum sem fluttir verða frá kjör­stöð­um. Klukkan 18.00 verður taln­ing­ar­staður í Laug­ar­dals­höll inn­sigl­aður og læstur en þar fer fram afstemm­ing og flokkun atkvæða til að und­ir­búa taln­ingu af hálfu yfir­kjör­stjórnar að við­stöddum umboðs­mönnum fram­boða. Klukkan 22.00 rýfur odd­viti yfir­kjör­stjórnar inn­siglin og opnar taln­ing­ar­stað. Þá getur taln­ing atkvæða haf­ist.

Fyrsta, önnur og þriðja umferð

Í fyrstu umferð verða talin öll kjör­funda­at­kvæði fyrri hluta dags. Áætlað er að henni ljúki um 23.40 og að fyrstu tölur í Reykja­vík liggi fyrir og verði gerðar opin­berar á mið­nætti. Önnur umferð taln­ingar hefst um leið og seinni kjör­kassar ber­ast í Laug­ar­dals­höll frá öllum 23 kjör­stöð­unum í Reykja­vík að kjör­fundi lokn­um.

Áætlað er að lokið verði við að telja öll kjör­fund­ar­at­kvæði um 02.50 og að aðrar tölur í Reykja­vík liggi fyrir og verði gerðar opin­berar klukkan 3. Í þriðju umferð verða utan­kjör­fund­ar­at­kvæði tal­in. Áætlað er að lokið verði við að telja öll atkvæði um kl. 4 og er áætlað að loka­tölur í Reykja­vik liggi fyrir og verði gerðar opin­berar kl. 4.30.

Ell­efu fram­boðs­listar eru í kjöri í Reykja­vík. Kjör­staðir opna kl. 9 á laug­ar­dags­morgun og loka líkt og fyrr segir kl. 22.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent