Gott hjá Lilju að taka af skarið

Stefán Ólafsson segir tillögu menningar- og viðskiptaráðherra um afnám skerðinga góða. Hann segir þó að tillagan sé ekki róttæk og að hún ætti ekki að vera tímabundin.

Stefán Ólafsson
Auglýsing

„Ég hef um langt ára­bil fært rök fyrir því að afnema eigi með öllu skerð­ingar vegna atvinnu­tekna í almanna­trygg­inga­kerf­inu, bæði fyrir öryrkja og eft­ir­launa­fólk. Þannig er það í Nor­egi og Sví­þjóð og Danir skerða mun minna en við vegna atvinnu­tekna.“

Þetta skrifar Stefán Ólafs­son, pró­­fessor emeritus við Háskóla Íslands og sér­­fræð­ingur hjá Efl­ing­u, í færslu á Face­book í dag.

Kjarn­inn greindi frá því í dag að Lilja Alfreðs­dóttir menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra teldi að það ætti að minnka eða afnema skerð­ingar vegna atvinnu­tekna til þess að mæta skorti á starfs­fólki á íslenskum vinnu­mark­aði. „Ég veit að þetta er mjög rót­tækt,“ sagði ráð­herr­ann um til­lögu sína.

Auglýsing

Þetta á að fram­kvæma strax og vera var­an­legt

Stefán segir að það sé gott hjá ráð­herr­anum að taka af skarið með þetta mál. „Það er hins vegar rangt hjá Lilju að þetta sé rót­tæk aðgerð og að hún ætti að vera tíma­bund­in,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­framt að þessi aðgerð sé ekki rót­tækt því þessar skerð­ingar þjóni engum skyn­sam­legum til­gangi. „Þær eru ein­ungis til að gera lág­tekju-líf­eyr­is­þegum erf­ið­ara fyrir með að bjarga sér með atvinnu­þátt­töku. Þær eru stór hluti af þeirri fátækt­ar­gildru sem er í almanna­trygg­inga­kerf­inu.

Og skerð­ingar vegna atvinnu­tekna spara rik­inu ekki útgjöld sem neinu nem­ur. Raunar gæti aukin atvinnu­þátt­taka skilað rík­inu auknum skatt­tekjum umfram það sem tap­ast við afnám skerð­ing­anna. Þetta á því að fram­kvæma strax og vera var­an­leg­t,“ skrifar hann og bætir því við að einnig þurfi að draga úr skerð­ingum vegna líf­eyr­is­sjóðs­tekna.

GOTT HJÁ LILJU ALFREÐS! Ég hef um langt ára­bil fært rök fyrir því að afnema eigi með öllu skerð­ingar vegna atvinnu­tekna...

Posted by Stefán Ólafs­son on Thurs­day, June 16, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent