Guðmundur Jónatan Baldursson gefur kost á sér til formennsku í Eflingu

Stjórnarmaður í Eflingu hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Eflingar. Framboðin eru nú orðin tvö.

Guðmundur Jónatan Baldursson
Guðmundur Jónatan Baldursson
Auglýsing

Guð­mundur Jón­atan Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Efl­ingu, hefur ákveðið að gefa kost á sér til for­mennsku í Efl­ingu í kosn­ingu meðal félags­fólks þann 15. febr­úar næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Guð­mundi sem birt er á Vísi.

„Ég hef setið í stjórn Efl­ingar allt frá árinu 2018. Aðra reynslu af stjórnun hef ég í gegnum störf mín sem for­stöðu­maður íþrótta­mið­stöðva. Ég starf­aði og gegndi hlut­verki trún­að­ar­manns hjá Grey Line Allra handa um ára­bil. Nú starfa ég hjá verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Faxa­verk sem vöru­bíl­stjóri ásamt annarri véla­vinn­u.“

Auglýsing

„Efl­ing-­stétt­ar­fé­lag er næst fjöl­menn­asta stétt­ar­fé­lag lands­ins með hátt í 30.000 ófag­lærða félags­menn þegar félagið er fjöl­menn­ast á sumr­in. Þar af er ríf­lega helm­ingur af erlendum upp­runa. Brýnt er að til for­mennsku í félag­inu velj­ist Efl­ing­ar­fé­lagi með hald­góða reynslu af verka­manna­störf­um, félags- og stjórn­un­ar­störfum innan stétt­ar­fé­lags­ins. Hann þarf að vera til­búin til að axla ábyrgð og hafa hug­rekki til að takast á við erf­iðar áskor­an­ir.

Með reynslu minni af vinnu­mark­aði og stjórnun Efl­ingar tel ég að ég hafi til að bera hvort tveggja. Skemmst er að minn­ast bar­áttu minnar gegn yfir­hylm­ingu fyrr­ver­andi for­manns gagn­vart arfa­lé­legum stjórn­ar­háttum fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra félags­ins. Hegðun fram­kvæmda­stjór­ans hefur ekki aðeins kostað félagið dýr­mætan þekk­ing­ar­leka vegna óeðli­lega mik­illar starfs­manna­veltu heldur tugi millj­óna króna í starfs­loka­samn­ing­um. Ótalin er van­líðan núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna og fjöl­skyldna þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Guð­mundur segir að ef honum verði trúað fyrir for­mennsku í Efl­ingu muni hann starfa af ein­hug fyrir alla Efl­ing­ar­fé­laga, inn­lenda sem erlenda, og stuðla að jafn­launa­stefnu.

„Einnig mun ég vinna að þeirri nýbreytni að deild­ar­skipta félag­inu með það að leið­ar­ljósi að starfs­menn innan hvers geira Efl­ingar eins og t.d. leik­skóla­starfs­fólk, hóp­ferða­bíl­stjór­ar, starfs­fólk í umönnun geti stofnað stjórnir innan sinna raða og haft áhrif á sína eigin kjara­samn­inga­gerð. Mark­mið með þessum áherslum er að efla stétt­ar­vit­und innan Efl­ingar og einnig að stuðla að því að hópar geti sjálfir komið með beinni hætti að sínum kröfu­gerð­um. Á end­anum er það alltaf aðal­stjórn Efl­ingar sem hefur úrskurð­ar­vald.

Einnig mun ég fara yfir allar greiðslur úr sjóðum Efl­ingar og birta þær opin­ber­lega,“ segir í til­kynn­ingu Guð­mund­ar.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Ólöf Helga Adolfs­dóttir vara­­for­­maður Efl­ingar hefði ákveðið að bjóða sig fram til for­­manns stétt­­ar­­fé­lags­ins svo fram­boðin eru nú orðin tvö.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent