Guðni Ágústsson hættir í mjólkinni, ástæðan aðhaldsaðgerðir

Guðni-Ágústsson.jpg
Auglýsing

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun hætta sem fram­kvæmda­stjóri Sam­taka afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði (SAM) í næstu viku þegar aðal­fundur sam­tak­ana fer fram. Sam­komu­lag varð á milli SAM og Guðba um starfs­lokin og þau skýr­ast fyrst og fremst af aðhalds­að­gerðum innan sam­tak­ana. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Guðna að tími sé til kom­inn að fara að snúa sér að öðru. "Ég er búinn að vera á þessum vett­vangi í fimm ár og það er í sjálfu sér langur tími. Það hefur verið sam­komu­lag milli mín og stjórn­ar­innar um að ég hætti störf­um. Ég ætl­aði að vísu að hætta í haust, en því var frestað þar sem mikil átök urðu í mjólkur­iðn­að­i".

Rögn­valdur Ólafs­son, for­maður stjórnar SAM, segir við Frétta­blaðið að rann­sókn­ar­starf­semi og mjólk­ur­eft­ir­lit hafi bæði færst frá SAM til Mjólk­ur­sam­söl­unnar vegna þess að sam­tökin telji sig geta sparað með því. Starfs­lok Guðna sé liður í þeim aðhalds­að­gerð­um.

Auglýsing

Eig­endur SAM eru: Mjólk­ur­sam­salan (sem er í 90 pró­sent eigu Auð­humlu og tíu pró­sent eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga), Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Mjólka ehf., sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga.

Mikil átök hafa verið innan mjólkuriðnaðarins undanfarin misseri. Mikil átök hafa verið innan mjólkur­iðn­að­ar­ins und­an­farin miss­er­i.

 

Guðni tók þátt í átökum vegna sektar



Þau miklu átök sem voru innan mjólkur­iðn­að­ar­ins, og Guðni vísar í sem ástæðu fyrir frestun starfs­loka sinna, snér­ust um 370 millj­óna króna sekt sem Mjólk­ur­sam­salan fékk vegna alvar­legra sam­keppn­islaga­brota í óktó­ber 2014. Etir­litið komst að þeirri nið­ur­stöðu að Mjólk­ur­sam­salan hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og beitt s­mærri keppi­nauta sam­keppn­is­hamlandi mis­munun með því að selja þeim hrá­mjólk á 17 pró­sent hærra verði en fyr­ir­tæki sem eru tengd MS greiddu.

Áfrýj­un­ar­nefnd Sam­keppn­is­mála ­felldi úrskurð­inn úr ­gild­i í des­em­ber þar sem ný gögn komu í ljós og vís­aði mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Nýrrar nið­ur­stöðu er enn beð­ið.

Mikið fór fyrir Guðna í opin­berri umræðu í kringum ákvörðun eft­ir­lits­ins. Hann kom opin­ber­lega fram og hnýtti fast í ákvörð­un­ina og þann sam­keppn­is­að­ila sem hafði kvartað yfir hegðun Mjólk­ur­sam­söl­unnar við eft­ir­lit­ið.

Einar líka að hætta



Guðni er ekki eini for­víg­is­maður mjólkur­iðn­að­ar­ins sem lætur af störfum næstu miss­er­in. Einar Sig­urðs­son, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Auð­humlu, hyggst láta af störfum 30. júní næst­kom­andi. Þetta til­kynnti hann snemma í

Einar Sigurðsson, fráfarandi forstjóri Mjólkursamsölunnar og Auðhumlu. Einar Sig­urðs­son, frá­far­andi for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Auð­humlu.

jan­ú­ar. Hann hefur verið for­stjóri félags­ins frá árinu 2009.

Í til­kynn­ing­unni frá Mjólk­ur­sam­söl­unni var haft eftir Ein­ari: „Ég tek þessa ákvörðun vegna breyt­inga sem verða á högum fjöl­skyldu minnar í lok júní. Við hjónin ákváðum fyrir um ári síðan að hverfa bæði úr mjög anna­sömum stjórn­un­ar­störfum hér heima um mitt þetta ár og dvelja og starfa tölu­vert erlendis næstu miss­eri. Ég sný mér þar að nýjum verk­efnum sem ég hef lengi haft áhuga á að hrinda í fram­kvæmd, en jafn­framt mun ég áfram vinna fyrir hönd Mjólk­ur­sam­söl­unnar að upp­bygg­ingu nýs fyr­ir­tækis með hópi fjár­festa til fram­leiðslu og sölu á skyri í Banda­ríkj­un­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None