Gunnar Bragi: „Það sjá allir að við höfðum rangt fyrir okkur“

12051580134_94606deacc_z.jpg
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir að það mat þáver­andi stjórn­ar­and­stöðu, sem flokkur hans var hluti af, árið 2010 að ein­ungis Alþingi hefði vald til að draga umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka hafi verið rangt. Þetta kom fram í við­tali við hann í Kast­ljósi í kvöld.

Gunnar Bragi til­kynnti Evr­ópu­sam­band­inu bréfleiðis að Íslandi væri ekki lengur umsókn­ar­ríki að sam­band­inu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Málið fór ekki fyrir Alþingi áður en bréfið var sent.

Þings­á­lyktun um slit



Í októ­ber 2010 var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að draga aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu til baka.  Flutn­ings­menn hennar voru meðal ann­ars Vig­dís Hauks­dóttir Fram­sókn­ar­flokki, Ásmundur Einar Daða­son Fram­sókn­ar­flokki, Birgitta Jóns­dóttir sem þá sat á þingi fyrir Hreyf­ing­una og Pétur H. Blön­dal Sjálf­stæð­is­flokki. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni sagði meðal ann­ars: „„Fyrir Alþingi hefur verið lögð þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að draga umsókn­ina um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu til baka. Alþingi eitt hefur vald til að draga umsókn­ina til baka, en minnt er á að sami þing­meiri­hluti situr nú og við sam­þykkt umsókn­ar­inn­ar.

Lík­legt er að komi sú til­laga til afgreiðslu falli atkvæði á sama veg þar sem hótun um stjórn­ar­slit liggur í loft­inu. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þessi, um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort halda eigi áfram við­ræðu­ferli Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins, er því sátta­til­raun. Meiri hluti alþing­is­manna end­ur­speglar ekki meiri hluta þjóð­ar­innar í afstöð­unni til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu. Það er því á grunni sann­girn­is­sjón­ar­miða sem þessi til­laga er lögð fram. Fari svo að sam­þykkt verði að sækja um aðild í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á grunni þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess­arar hafa stjórn­völd fengið skýrt umboð í hend­ur, ekki fyrr.“

Auglýsing

Höfðu rangt fyrir sér



Gunnar Bragi var gestur Kast­ljóss í kvöld og þar var hann spurður út í þá full­yrð­ingu sem kom fram í ofan­greindri til­lögu um að „Al­þingi eitt hefur vald til að draga umsókn­ina til bak­a“, en Gunnar Bragi studdi á sínum tíma til­lög­una.

Hann aðspurður aug­ljóst að þeir sem stóðu að til­lög­unni og studdu hana hafi haft rangt fyrir sér.  „Það sjá allir að við höfðum rangt fyrir okk­ur[...]­Rík­is­stjórnin er ekki bundin af ákvörð­unum fyrri rík­is­stjórn­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None