Hægt verði að refsa heilbrigðisstofnunum sem heild vegna alvarlegra atvika

Heilbrigðisráðuneytið áformar að bæta ákvæði inn í lög um heilbrigðisþjónustu sem opnar á að heilbrigðisstofnanir verði látnar sæta refsiábyrgð, sem stofnanir, á alvarlegum atvikum sem upp koma, án þess að einstaka starfsmönnum verði kennt um.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Heil­brigð­is­ráðu­neytið áformar að setja inn í lög um heil­brigð­is­þjón­ustu ákvæði um „cumulati­va“ og hlut­læga refsi­á­byrgð heil­brigð­is­stofn­ana, þar sem ljóst þykir að ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um refsi­á­byrgð lög­að­ila eigi ekki nægi­lega vel við þegar til athug­unar eru alvar­leg atvik í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Sjúkra­stofn­anir á Íslandi gætu þannig verið látnar sæta refsi­á­byrgð, sem stofn­an­ir, í til­fellum þar sem ljóst þykir að kerf­is­legur vandi, margir sam­verk­andi þættir eða röð atvika hafi verið orsök alvar­legs atviks, án þess að ein­staka starfs­mönnum verði um kennt.

Ekki er hægt að koma fram refsi­á­byrgð gagn­vart heil­brigð­is­stofn­unum á Íslandi í dag nema á grund­velli almennra hegn­ing­ar­laga og þá ein­ungis í þeim til­vikum þar sem hægt er að sanna sök til­tek­ins ein­stak­lings, en til stendur í að breyta því.

Áform heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um laga­setn­ing­una eru kynnt í skjali sem birt­ist á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær.

Rann­sóknir verði fyrst og fremst á borði land­lækn­is­emb­ætt­is­ins

Þar segir einnig um laga­breyt­ing­arnar að til athug­unar sé hvort rétt sé að breyta lögum á þann veg að rann­sókn óvæntra atvika í heil­brigð­is­þjón­ustu fari „fyrst og fremst fram hjá emb­ætti land­læknis en ekki sam­tímis hjá lög­reglu“, en þó myndi emb­ætti land­læknis geta kært mál til lög­reglu þegar grunur væri um stór­kost­legt gáleysi eða ásetn­ing.

Auglýsing

Lög­regla gæti svo eftir sem áður, þegar til­efni er til, tryggt rann­sókn­ar­hags­muni í upp­hafi máls, til dæmis með hald­lagn­ingu gagna eða skýrslu­tök­um.

Starfs­hópur hefur verið stofn­aður til að vinna frum­varp um þessar breyt­ing­ar, en fyr­ir­hugað er að starfs­hóp­ur­inn ræði sér­stak­lega við full­trúa félaga­sam­taka sem hafa sér­stakra hags­muna að gæta og sömu­leiðis að hann fái fram sjón­ar­mið sjúk­linga sem orðið hafa fyrir alvar­legum atvikum í heil­brigð­is­þjón­ustu eða aðstand­enda þeirra.

Í skjal­inu á sam­ráðs­gátt­inni segir að þess megi vænta að ef frum­varpið verði að lögum megi gera ráð fyrir því að fjölga þurfi um hálft til eitt stöðu­gildi hjá emb­ætti lands­læknis til að sinna rann­sókn­um, sem kosti um 7-13 millj­ónir króna á árs­grund­velli.

Að sama skapi megi ætla að verk­efnum lög­reglu­emb­ætta fækki, að minnsta kosti sem nemur sama fjölda stöðu­gilda og bæt­ast við hjá emb­ætti land­lækn­is, „ef ekki meira vegna fækk­unar mála þar og sam­legð­ar­á­hrifa af sam­ein­ingu rann­sókna.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent