Heiðar Örn ráðinn fréttastjóri Ríkisútvarpsins

Heiðar Örn Sigurfinnsson hefur verið ráðinn fréttastjóri RÚV úr hópi fjögurra umsækjenda. Hann hefur verið varafréttastjóri undanfarin ár og starfandi fréttastjóri frá áramótum, eftir að Rakel Þorbergsdóttir sagði starfi sínu lausu.

Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri hefur verið ráðinn fréttastjóri RÚV.
Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri hefur verið ráðinn fréttastjóri RÚV.
Auglýsing

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, sem verið hefur vara­f­rétta­stjóri RÚV frá árinu 2017 og starf­andi frétta­stjóri frá ára­mót­um, hefur verið ráð­inn frétta­stjóri RÚV. Hann var einn fjög­urra umsækj­enda um stöð­una, sem aug­lýst var til umsóknar í upp­hafi árs í kjöl­far þess að Rakel Þor­bergs­dóttir sagði starfi sínu lausu.

Auk Heið­ars sóttu þrír aðrir karlar um starf­ið, Val­­geir Örn Ragn­­ar­s­­son frétta­­mað­­ur, Þór Jóns­­son sviðs­­stjóri og Þórir Guð­­munds­­son, fyrr­ver­andi rit­­stjóri frétta­­stofu Stövar 2, Vísis og Bylgj­unn­­ar.

Heiðar Örn var fyrst ráð­inn frétta­maður á frétta­stofu RÚV árið 2005 og var þing­frétta­rit­ari 2007-2009. Á árunum 2009 til 2018 var hann vak­stjóri á frétta­stof­unni með dag­lega stjórnun á frétta­vakt, rit­stjórn og skipu­lagn­ing frétta­vinnslu. Þá var hann um sex ára skeið kosn­inga­rit­stjóri frétta­stofu og fór með skipu­lag, umsjón og ábyrgð á kosn­inga­um­fjöllun RÚV í aðdrag­anda kosn­inga. Heiðar Örn hefur frá árinu 2013 lesið fréttir í sjón­varpi. Hann varð vara­f­rétta­stjóri árið 2017. Í því starfi er meðal ann­ars fólgin rit­stjórn og mótun frétta­á­herslna fyrir alla miðla í sam­starfi við vakt­stjóra frétta­stof­unnar auk dag­legs rekst­urs og mönn­unar frétta­stofu, áætl­ana­gerð og stefnu­mót­un.

Heiðar Örn er stjórn­mála­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í alþjóða­sam­skiptum frá Uni­versity of Nott­ing­ham í Bret­landi 2004.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá RÚV segir að hlut­verk frétta­stjóra sé að leiða frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins og bera ábyrgð á frétta­flutn­ingi í sjón­varpi, útvarpi og á vef. „Leitað var að stjórn­anda með yfir­grips­mikla þekk­ingu af blaða- og frétta­mennsku, góða sam­skipta- og sam­starfs­færni og hæfni til að leiða árang­urs­ríka teym­is­vinnu auk ann­arra hæfn­iskrafna. Í ráðn­ing­ar­ferl­inu var stað­fest að Heiðar Örn upp­fyllir afar vel þessar kröfur sem og aðrar kröfur sem gerðar eru til starfs­ins,“ ­segir í til­kynn­ingu á vef RÚV um ráðn­ing­una.

Matth­ías Már nýr dag­skrár­stjóri Rásar 2

RÚV greinir einnig frá því í til­kynn­ingu í dag að Matth­ías Már Magn­ús­son hafi verið ráð­inn nýr dag­skrár­stjóri Rásar 2, en það starf var áður í höndum Bald­vins Þórs Bergs­son­ar, sem hefur tekið að sér önnur verk­efni innan Rík­is­út­varps­ins.

Heiðar Örn og Matthías Már voru ráðnir í yfirmannastöður hjá RÚV í dag.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá RÚV hafi byrjað að vinna við dag­skrár­gerð og dag­skrár­stjórnun í útvarpi 2002 á XFM og síðar X-inu 977 hjá 365.

„Hann hefur verið dag­skrár­gerð­ar­maður á Rás 2 frá 2008, þar á meðal í Popp­landi. Frá 2015 hefur Matth­ías Már verið tón­list­ar­stjóri og aðstoð­ar­dag­skrár­stjóri Rásar 2. Í því starfi hefur hann ann­ast ýmis­legt sem snýr að rekstri Rásar 2, svo sem skipu­lagn­ingu dag­skrár, þjálfun dag­skrár­gerð­ar­fólks og erlend og inn­lend sam­skipti. Auk þess hefur hann sinnt dag­skrár­gerð fyrir útvarp og sjón­varp,“ segir í til­kynn­ingu RÚV.

Matth­ías lauk fram­halds­námi í fram­leiðslu útvarps­efnis frá Bour­nemouth Uni­versity í Bret­landi árið 2007 og leggur nú stund á MLM-­nám í for­ystu og stjórnun við Háskól­ann á Bif­röst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent