Heimili sparar 30 þúsund krónur við afnám tolla - Viðskiptaráð vill líka afnema matartolla

fjarmala-1.jpg
Auglýsing

Boðað afnám fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á nærri tvö þús­und tolla­núm­erum á árunum 2016 og 2017 mun draga úr útgjöldum með­al­heim­ilis um 30 þús­und krónur á ári, sam­kvæmt útreikn­ingum Við­skipta­ráðs Íslands. Það er einnig mat ráðs­ins að afnám tolla á mat­væli myndi skila enn meiri sparn­aði fyrir heim­ilin í land­inu, til við­bótar við 30 þús­und krónur sem spar­ast við fyr­ir­hugð­arar breyt­ing­ar.

Fyrir helgi til­kynnti ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar að tollar á fatnað og skó falli niður um næstu ára­mót og afnám ann­arra tolla, að und­an­skildum tollum á mat­vöru, falli niður ára­mótin 2016/2017.

„Neyslu­skattar munu lækka um um 1,8 millj­arða króna ­vegna þeirra aðgerða,“ segir í frétt Við­skipta­ráðs um afnám tolla á fatn­aði og skóm. „Ávinn­ing­ur­inn af nið­ur­fell­ing­unni er tví­þætt­ur. Ann­ars vegar munu neyt­endur njóta lægri verða en áður. Sam­kvæmt áætlun Við­skipta­ráðs mun verð á fatn­aði og skóm hér­lendis lækka um 13% við afnám tolla. Hins vegar munu umsvif inn­lendrar versl­unar aukast vegna sam­keppn­is­hæf­ara verð­lags í alþjóð­legum sam­an­burði. Það skilar neyt­endum frek­ari ávinn­ingi í formi auk­innar sam­keppni og fjöl­breytt­ara vöru­úr­vals.“

Auglýsing

Við­skipta­ráð vísar í fyrri grein­ingu á áhrifum afnáms vöru­gjalda á verð­lag, sem sýndi að verð á sjón­vörpum og útvörpum lækk­aði um 19 pró­sent í kjöl­far breyt­ing­anna. „Jafn­framt lækk­aði álagn­ing versl­ana lít­il­lega í kjöl­far breyt­ing­anna. Afnám vöru­gjalda skil­aði sér því að fullu til neyt­enda og gott bet­ur.

Reynslan af afnámi vöru­gjalda er vís­bend­ing um jákvæð áhrif skatta­lækk­ana á sam­keppni. Þegar vöru­verð lækkar eykst velta með við­kom­andi vörur á móti. Versl­anir þurfa því að leggja minna á hverja vöru til að skila óbreyttum hagn­aði. Af þessu að áætla að afnám tolla muni skila sér að fullu til neyt­enda í formi lægra vöru­verðs líkt og raunin var með afnám vöru­gjalda,“ segir Við­skipta­ráð.

Hvetja stjórn­völd til að afnem tolla á mat­væli



Sam­kvæmt útreikn­ingum Við­skipta­ráðs myndi afnám tolla á mat­vörur skila með­al­heim­ili um 76 þús­und króna sparn­aði til við­bótar við þann 30 þús­und króna sparnað sem fæst við afnám tolla á aðrar vör­ur. „Við­skipta­ráð hvetur stjórn­völd til að afnema jafn­framt tolla á mat­vörur og sam­hliða því umbreyta styrkja­fyr­ir­komu­lagi land­bún­að­ar­ins. Í nýrri skoðun ráðs­ins, „Hverjar eru okkar ær og kýr?“, kemur fram að toll­vernd leiðir til hærra mat­væla­verðs. Þannig eru toll­vernduð mat­væli allt að 59% dýr­ari hér­lendis en í öðrum ríkj­um. Sam­kvæmt áætlun ráðs­ins myndi afnám tolla á mat­væli skila með­al­heim­ili um 76 þús­und kr. sparn­aði til við­bótar við þær 30 þús­und kr. sem spar­ast við afnám tolla á aðrar vör­ur.5 Já­kvæð áhrif slíkrar skatta­lækk­unar á lífs­kjör væru því veru­leg.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None