Hlutdeildarlánin ekki að ganga jafn hratt út og áætlanir gerðu ráð fyrir

Þegar hlutdeildarlánin voru kynnt til sögunnar haustið 2020 var gert ráð fyrir því að um fjórir milljarðar yrðu lánaðir vaxtalaust til fyrstu kaupenda á ári hverju. Á fyrsta rúma árinu hafa útlán hins opinbera hins vegar numið tæpum 2,5 milljörðum.

Hlutdeildarlánunum var ætlað að hjálpa tekju- og eignalitlu fólki að komast í eigið húsnæði og skapa hvata til aukinnar uppbyggingar ódýrari íbúða.
Hlutdeildarlánunum var ætlað að hjálpa tekju- og eignalitlu fólki að komast í eigið húsnæði og skapa hvata til aukinnar uppbyggingar ódýrari íbúða.
Auglýsing

Á rúmu ári hafa alls verið veitt 294 hlut­deild­ar­lán, sem eiga að nýt­ast tekju- og eigna­litlum ein­stak­lingum til kaupa á fyrstu fast­eign. Um er að ræða vaxta- og afborg­ana­laus við­bót­ar­lán frá rík­inu sem geta numið allt að 20 pró­sentum af kaup­verði til­tek­inna fast­eigna. Ríkið fær síðan greitt til baka þegar fast­eignin er seld.

Heild­ar­fjár­hæð þess­ara 294 lána nam 2.438 millj­ónum króna, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins í vik­unni, sem byggði á svörum Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar við fyr­ir­spurn mið­ils­ins.

Það er um einum og hálfum millj­arði lægri upp­hæð en áætl­anir gerðu ráð fyrir þegar lög um hlut­deild­ar­lán urðu voru sam­þykkt á Alþingi í upp­hafi 2020. Þá var gengið út frá því að um fjórir millj­arðar króna yrðu lán­aðir árlega næstu tíu ár og á að heild­ar­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs vegna lán­anna myndu nema 40 millj­örðum á því tíma­bili.

Vert er þó að taka fram að sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í síð­asta mán­uði gerðu áætl­anir enn ráð fyrir því að hlut­deild­ar­lán að upp­hæð 3,6 millj­arða króna yrðu veitt á þessu ár. Í áætl­unum næsta árs svo gert ráð fyrir 3,75 millj­arða króna útlánum í þessum lána­flokki.

Sér­stakir ferlar um umfram­eft­ir­spurn skrif­aðir inn í reglu­gerð

Sam­kvæmt reglu­gerð um þessa teg­und lána skal úthluta þeim sex sinnum á ári, þrisvar sinnum á fyrri helm­ingi árs og þrisvar sinnum á síð­ari helm­ingi árs­ins. Inn í reglu­gerð­ina eru skrif­aðar sér­stakar reglur um hvernig skuli bregð­ast við ef það fjár­magn sem sé til úthlut­unar hverju sinni dugi ekki til að anna eft­ir­spurn eft­ir­lán­um.

Auglýsing

Ef sú staða kemur upp, ein­hvern­tím­ann á næstu árum, skal dregið af handa­hófi úr umsóknum þeirra umsækj­enda sem upp­fylla skil­yrði fyrir því fá lánin og hljóta þeir þá hlut­deild­ar­lán eða láns­vil­yrði, eftir því hvort kauptil­boð leggur fyrir eða ekki.

Umsækj­endur með sam­þykkt kauptil­boð í íbúðir skulu njóta for­gangs að hlut­deild­ar­lánum umfram þá sem ekki hafa þegar fengið sam­þykkt kauptil­boð, segir í reglu­gerð­inni, auk þess sem þar er imprað á því að minnsta kosti 20 pró­sent hlut­deild­ar­lána skuli renna til kaupa á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Engin íbúð til í dýrasta flokki

Í reglu­gerð­inni um hlut­deild­ar­lánin er skil­greint fyrir hvers­konar íbúðum er lán­að. Hærri lán eru veitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en utan þess, og lands­byggð­inni er skipt upp í „vaxt­ar­svæði“ og svæði utan vaxt­ar­svæða.

Að hámarki er hægt að fá hlut­deild­ar­lán fyrir íbúð sem kostar 58,5 millj­ónir króna, en það þarf þá að vera 4 svefn­her­bergja íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er að lág­marki 100 fer­metr­ar. Hún þarf svo að vera ný, eða í það minnsta nýupp­gerð sem íbúð­ar­hús­næði.

Engin íbúð, hvorki ný né eldri, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp­fyllir þessi skil­yrði, sam­kvæmt athugun Kjarn­ans á fast­eigna­vef Vísis í gær. Bent hefur verið á það að und­an­förnu að heilt yfir séu sára­fáar íbúðir sem upp­fylli skil­yrði hlut­deild­ar­lán­anna til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um þessar mund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent