„Hvers konar viðbrögð eiga þetta eiginlega að vera?“

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýna ríkisstjórnina harðlega fyrir að axla ekki pólitíska ábyrgð á sölunni á Íslandsbanka.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Auglýsing

„Hvers konar við­brögð eiga þetta eig­in­lega að vera? Frekar en að axla póli­tíska ábyrgð á eigin klúðri ætla for­menn flokk­anna að henda starfs­fólki og stjórn Banka­sýsl­unnar undir vagn­inn.“

Þetta skrifar þing­maður Pírata, Andrés Ingi Jóns­son, í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag.

Þing­mað­ur­inn er með orðum sínum að bregð­ast við fréttum þess efnis að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins.

Auglýsing

Hann segir að áfram þyk­ist rík­is­stjórnin geta stýrt því hvernig emb­ætt­is­verk rík­is­stjórn­ar­innar séu rann­sök­uð.

„„Rík­is­stjórnin hefur því ákveð­ið,“ stendur í yfir­lýs­ing­unni, en það eru bara for­menn­irnir þrír sem ákveða þetta sín á milli. Á sama tíma falla niður rík­is­stjórn­ar­fundir í tvær vikur – næstum eins og ekki sé hægt að hleypa öllum ráð­herrum að borð­inu. Það eru tólf ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni og 38 þing­menn í stjórn­ar­flokk­un­um. Hafa þau ekk­ert um þetta að segja? Fylgja þau bara geð­þótta for­ingj­anna þriggja?“ spyr hann í færsl­unni.

Hvers konar við­brögð eiga þetta eig­in­lega að ver­a? Frekar en að axla póli­tíska ábyrgð á eigin klúðri ætla for­menn...

Posted by Andrés Ingi á þingi on Tues­day, April 19, 2022

„Ár­inni kennir illur ræð­ari“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins segir á Face­book-­síðu sinni að rík­is­stjórnin við­ur­kenni að hún hafi gert mis­tök við einka­væð­ingu Íslands­banka en geri það með því að leggja niður Banka­sýsl­una.

„Þau hafa lík­lega leitað að lausn í páska­eggi og fengið máls­hátt­inn „ár­inni kennir illur ræð­ar­i“,“ skrifar hann.

Rík­is­stjórnin við­ur­kennir að hún hafi gert mis­tök við einka­væð­ingu Íslands­banka en gerir það með því að leggja nið­ur­...

Posted by Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son on Tues­day, April 19, 2022

Telur fjár­mála­ráð­herra bera ábyrgð

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir á Twitter að ábyrgð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra sé ótví­ræð og bundin í lög. „Hafi hann van­rækt skyldur sínar um yfir­ferð yfir til­lögur Banka­sýslu um söl­una, aðferð og til­boð ber honum að gang­ast við þeirri hand­vömm og víkja úr emb­ætt­i,“ skrifar hún.

„Hafi hann með fullri með­vit­und sam­þykkt hvert ein­asta skref sem tekið var, eins og honum ber að gera ber hann einnig óskor­aða ábyrgð og ber að víkja úr emb­ætti. Það er ljóst að almenn­ingur hefur orðið fyrir óaft­ur­kræfu og mjög kostn­að­ar­sömu tjóni vegna verka fjár­mála­ráð­herra.“

Hún segir að þetta verði rík­is­stjórnin að við­ur­kenna. „Annað er óboð­leg­t.“

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar tjáir sig einnig um málið á Twitt­er. Hún spyr: „Er verið að leggja Banka­sýsl­una niður fyrir að ... fram­fylgja ákvörð­unum fjár­mála­ráð­herra?“ Hún segir jafn­framt að rík­is­stjórnin loki pásk­unum með því að kross­festa Banka­sýsl­una. „Halda svo áfram í páska­frí­inu og sleppa rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent