„Í alvörunni vinna engar gribbur hjá Útlendingastofnun“

Útlendingastofnun hefur sett upp nýjan vef, með svörum við spurningum sem gætu vaknað hjá börnum við áhorf jóladagatalsins sem sýnt er á RÚV núna á aðventunni. Þar kemur auk annars fram að í alvörunni vinni engar gribbur hjá stofnuninni.

Randalín og Mundi eru aðalsöguhetjurnar í nýju jóladagatali sem sýnt er á RÚV þessa dagana.
Randalín og Mundi eru aðalsöguhetjurnar í nýju jóladagatali sem sýnt er á RÚV þessa dagana.
Auglýsing

Útlend­inga­stofnun hefur sett í loftið sér­stakan vef, þar sem farið er yfir efn­is­at­riði í jóla­daga­tal­inu sem sýnt er á RÚV nú á aðvent­unni, en það ber heitið Randa­lín og Mundi: Dagar í des­em­ber og fjallar meðal ann­ars um fólk á flótta.

Á vef Útlend­inga­stofn­unar segir að jóla­daga­talið sé „vel tíma­sett“ því aldrei hafi áður jafn margir flúið til Íslands og á þessu ári, sem þýði að aldrei áður hafi jafn mörg börn á Íslandi átt bekkj­ar­systkin og nágranna sem hafi þurft að flýja heima­lönd sína.

„Per­sónur þátt­anna eru skáld­aðar en áhorf­endur velta því örugg­lega fyrir sér hvort þætt­irnir gætu gerst í raun­veru­leik­an­um. Randa­lín og Mundi eru klárir krakkar sem spyrja margra skyn­sam­legra spurn­inga um flótta­fólk. Full­orðna fólkið í þátt­unum á hins vegar oft ekki til nein svör við spurn­ingum þeirra. Fyrir þá krakka, for­eldra og kenn­ara, sem eru að velta þessum spurn­ingum fyrir sér, ákváðum við hjá Útlend­inga­stofnun að taka saman upp­lýs­ingar í tengslum við efni þeirri þátta sem fjalla um mál­efni flótta­fólks. Við vonum að upp­lýs­ing­arnar nýt­ist sem grunnur að góðum sam­tölum á aðvent­unni og í fram­tíð­inn­i,“ segir á vef Útlend­inga­stofn­un­ar.

Auglýsing

Gagn­rýni á daga­talið

Jóla­daga­talið var gagn­rýnt nokkuð í upp­hafi mán­að­ar, í kjöl­far þess að leik­konan Ilmur Krist­jáns­dótt­ir, sem er einn höf­unda jóla­daga­tals­ins og túlkar jafn­framt for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í þátt­un­um, lét hafa eftir sér í skemmti­þætt­inum Vik­unni með Gísla Mart­eini að hún hefði sett sér það ára­móta­heit að taka að sér hlut­verk vondrar konu á árinu og upp­fyllt það með því að leika for­stjóra Útlend­inga­stofn­un­ar.

Andri Steinn Hilm­ars­son bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópa­vogi sagði það nýjan lág­punkt „þegar útlend­inga­stefna RÚV er orðin að meg­in­þema í jóla­barna­efni sem er fram­leitt“ og að emb­ætt­is­menn væru „settir í skot­miðin hjá stofn­un­inni með þessum hætt­i“.

Fyrir viku sagð­ist þátta­gerð­ar­kona á vegum RÚV, í þætti á RÚV þar sem hún var gestur og fjallað var um annan vænt­an­leg­an...

Posted by Andri Steinn Hilm­ars­son on Fri­day, Decem­ber 2, 2022

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður sama flokks tók svo málið upp á þingi og í kjöl­farið sagði í leið­ara Morg­un­blaðs­ins að alvar­legt væri að „RÚV skuli bjóða upp á barna­efni þar sem veist er að opin­berum emb­ætt­is­manni og fluttur áróður um póli­tísk mál­efn­i“.

Bara þing­menn­irnir á Alþingi sem breytt geti lög­unum

Á vef Útlend­inga­stofn­unar eru settar fram útskýr­ingar á þeim málum sem eru til umfjöll­unar í þætt­inum á ein­földu máli. Þar kemur meðal ann­ars fram að þrátt fyrir að for­stjóri Útlend­inga­stofnun sé „svaka­leg gribba“ sé það svo að í „al­vör­unni vinna engar gribbur hjá Útlend­inga­stofn­un“ og útskýrt er að fólkið sem vinni hjá Útlend­inga­stofnun vilji fólki eins og Fatimu, karakter í þátt­unum sem senda á úr landi, vel, „þótt það þurfi að segja henni að lögin séu þannig að hún fái ekki að vera áfram á land­in­u“.

„Það eru ekki allir sam­mála um hvernig lögin um hverjir megi búa á Íslandi eigi að vera. Þing­menn á Alþingi deila oft um þessi mál. Lögin sem gilda hverju sinni er þær reglur sem fólkið hjá Útlend­inga­stofnun þarf að fara eftir þegar það skoðar hver má vera og hvar þarf að fara. Það eru bara þing­menn­irnir á Alþingi sem geta breytt lög­un­um,“ segir einnig í umfjöllun Útlend­inga­stofn­unar um efni þátt­anna.

Til þessa hefur stofn­unin birt upp­lýs­ingar um efn­is­at­riði fjög­urra þátta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent