Ísland styður UNCCD með beinu fjárframlagi eftir að fyrrverandi ráðherra hóf störf

Framlag íslenskra stjórnvalda til skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD) til ársins 2023 nemur rúmlega 77 milljónum króna. Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var nýverið ráðinn til starfa hjá stofnuninni.

Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD). Framlag íslenskra stjórnvalda til stofnunarinnar nema um 77 milljónum króna til ársins 2023.
Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD). Framlag íslenskra stjórnvalda til stofnunarinnar nema um 77 milljónum króna til ársins 2023.
Auglýsing

Íslensk stjórn­völd gerðu samn­ing á síð­asta ári við skrif­stofu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um aðgerðir gegn eyði­merk­ur­myndun (UNCCD) um óskil­yrt kjarna­fram­lag til þriggja ára (2021-2023) sem nemur 200 þús­und Banda­ríkja­dölum á ári, eða rúm­lega 25,8 millj­ónum króna árlega.

Stofn­unin er ein fjög­urra stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna sem íslensk stjórn­völd hafa ákveðið að auka fram­lög til í sam­ræmi við loka­yf­ir­lýs­ingu COP26 lofts­lags­ráð­stefn­unnar í Glas­gow sem fram fór síð­ast­liðið haust. Öll fram­lögin miða að lofts­lags­að­gerðum í þró­un­ar­ríkj­um.

Í fyrsta sinn sem Ísland styður stofn­un­ina með beinu fjár­fram­lagi

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, síðar Mið­flokks­ins, hóf störf hjá stofn­un­inni í síð­asta mán­uði. Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að fjár­veit­ingin teng­ist ekki starfs­manna­haldi skrif­stof­unn­ar.

Auglýsing

„Fram­lagið til skrif­stof­unnar var hluti af þeirri aukn­ingu fram­laga til þró­un­ar­tengdra lofts­lags­verk­efna sem til­kynnt var um á leið­toga­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna í des­em­ber 2020,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Ísland styður stofn­un­ina með beinu fjár­fram­lagi, umfram skyldu­fram­lag.

Ís­land er á meðal stofn­enda vina­hóps Eyð­i­­merk­­ur­­samn­ings­ins á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom því til leiðar að vernd­un, end­­ur­heimt og stöðvun land­eyð­ingar hlyti rík­­­ari sess í Heims­­mark­mið­unum en áætlað var. Síð­­ast­liðið ár hefur Ísland einnig leitt samn­inga­við­ræður um ályktun er varðar eyð­i­­merk­­ur­­myndun og land­græðslu.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur einnig fram að utan­rík­is­þjón­ustan hafi unnið vel með skrif­stofu samn­ings­ins í New York um ára­bil. Sam­starfið megi rekja til stofn­unar vina­hóps gegn eyði­merk­ur­myndun árið 2014 sem Ísland hefur leitt ásamt Namibíu allar götur síð­an. Þar segir einnig að íslensk stjórn­völd hafa um ára­bil lagt áherslu á umhverf­is- og lofts­lags­mál í opin­berri þró­un­ar­sam­vinnu og er land­græðsla á meðal áherslu­þátta.

Gunnar Bragi sagði skilið við stjórn­málin síð­asta haust og sett­ist á skóla­bekk við Háskól­ann á Bif­röst. Hann sótti um starf sér­staks ráð­gjafa fram­kvæmda­stjóra UNCCD síð­asta sumar og fór í atvinnu­við­tal í októ­ber ásamt nokkrum öðr­um. Honum bauðst starfið með skömmum fyr­ir­vara í síð­asta mán­uði og hóf þegar störf.

Ráðn­­ingin er til eins árs, að minnsta kosti til að byrja með. Gunnar Bragi er búsettur í Bonn í Þýska­landi þar sem stofn­unin hefur aðsetur og sagði í sam­tali við Kjarn­ann eftir að ráðn­ing hans tók gildi að lífið eftir póli­tík væri „æð­is­leg­t“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki