Kæra borist vegna Birgis – Erna fái kjörbréf í hans stað

Kæra hefur borist undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa þar sem farið er fram á að Alþingi ógildi kosningu Birgis Þórarinssonar, sem var kjörinn á þing fyrir Miðflokkinn en gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn tveimur vikum eftir kosningar.

Í kærunni er þess krafist að Alþingi ógildi kosningu Birgis Þórarinssonar og staðfesti ekki kjörbréf hans. Þessi í stað eigi landskjörstjórn að gefa út kjörbréf til handa Ernu Bjarnadóttur, frambjóðanda Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Í kærunni er þess krafist að Alþingi ógildi kosningu Birgis Þórarinssonar og staðfesti ekki kjörbréf hans. Þessi í stað eigi landskjörstjórn að gefa út kjörbréf til handa Ernu Bjarnadóttur, frambjóðanda Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Auglýsing

Í kærunni, sem var send út á fimmtu­dag, er þess kraf­ist að Alþingi stað­festi ekki kjör­bréf Birgis og þess í stað verði lands­kjör­stjórn falið að gefa út kjör­bréf til handa Ernu Bjarna­dóttur sem skip­aði annað sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi.

Þegar Birgir greindi frá vista­skiptum sínum yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn 9. októ­ber taldi hann full­víst að Erna hygð­ist fylgja for­dæmi hans. Henni hafi síðan snú­ist hug­ur. Í kærunni segir að þessi fram­koma und­ir­striki ódreng­skap Birg­is, það er að hann hafi haldið því fram í fjöl­miðlum að Erna hygð­ist fylgja honum án þess að hún hafi sjálf lýst því yfir fyrst.

Auglýsing

Ákvörðun Birgis um að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem tók honum opnum örm­um, hefur verið afar umdeild og hefur hann legið undir ámæli fyrir að hafa blekkt kjós­­end­­ur, sér­­stak­­lega þar sem hann vís­aði í næstum þriggja ára gam­alt mál, Klaust­­ur­­málið svo­­kall­aða, sem rök­­stuðn­­ing fyrir ákvörðun sinn­i.

Kjós­endur Mið­flokks­ins keyptu kött­inn í sekknum

„Ljóst er að kjós­endur Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi keyptu kött­inn í sekknum þar sem Birgir hafði hvergi getið þess í aðdrag­anda kosn­ing­anna að unnið væri gegn honum innan flokks­ins eða að hann teldi sig ekki eiga sam­leið með öðrum odd­vitum Mið­flokks­ins,“ segir í kærunni. Þar segir einnig að flestir hljóti að vera sam­mála um að það sé bæði óheið­ar­legt og ólýð­ræð­is­legt að villa á sér heim­ildir í kosn­ingum til Alþing­is. Ef ekki verði gripið til aðgerða megi reikna með að fleiri slíkar upp­á­komur eigi sér stað í kom­andi kosn­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent