Könnun: Um 57 prósent hlynnt móttöku flóttafólks en 22 prósent á móti

rsz_h_52194635.jpg
Auglýsing

Um 57 pró­sent svar­enda í nýrri könnun um við­horf til mót­töku flótta­fólks eru hlynntir því að Ísland taki við flótta­mönnum frá Sýr­landi á næstu mán­uð­um. Um 22 pró­sent eru and­víg því. Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­unar Mask­ínu þá eru konur mun hlynnt­ari því en karlar að taka á móti flótta­mönnum frá Sýr­landi, yngri svar­endur eru mun hlynnt­ari því en þeir sem eldri eru, Reyk­vík­ingar eru mun hlynnt­ari því en aðr­ir, þeir sem hafa lokið háskóla­prófi eru hlynnt­ari því en þeir sem hafa styttri skóla­göngu að baki og þeir sem hafa litlar eða engar áhyggjur af fjölda inn­flytj­enda á Íslandi eru hlynnt­ari mót­töku flótta­fólks en þeir sem hafa ein­hverjar áhyggj­ur.

Í skýrslu Mask­ínu um könn­un­ina kemur fram að veru­legur munum hafi mælst á svörum fólks eftir því hvaða stjórn­mála­flokk það styð­ur. Kjós­endur Vinstri grænna eru hlynnt­astir því að Ísland taki við flótta­mönnum frá Sýr­landi. Yfir 70 pró­sent kjós­enda flokks­ins segj­ast hlynntir því að taka á móti flótta­fólki frá Sýr­landi. Sama hlut­fall hjá kjós­endum Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata er á bil­inu 66 til 68 pró­sent. Ein­ungis 22 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar eru hlynntir því að taka á móti sýr­lenskum flótta­mönn­um, um 38 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og næstum þrír af hverjum fjórum kjós­endum Bjartrar fram­tíð­ar. Með­al­talið er þó hæst hjá kjós­endum Vinstri Grænna og Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, þar sem fáir taka afstöðu gegn því að Ísland taki á móti flótta­fólki frá Sýr­landi.

Þegar spurt var hversu mörgum flótta­mönnum frá Sýr­landi þú telur að Ísland eigi að taka við á næstu tveimur árum sagði 26,4 pró­sent aðspurðra að ekki ætti að taka við nein­um. Um 26,3 pró­sent nefndu fjölda á bil­inu einn til hund­rað og 22,3 pró­sent töldu að taka ætti á móti 101 til 500 manns. Um 9,6 pró­sent aðspurðra nefndu fjölda hærri en 2000 manns, en engir fyr­ir­fram til­greindir svar­mögu­leikar voru til staðar heldur slógu svar­endur inn tölu.

Auglýsing

Fólk yngra en 35 ára var lík­legra en fólk eldri en 35 ára til að vilja taka á móti flótta­mönn­um. Á bil­inu 42 til 46 pró­sent kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks, sögð­ust ekki vilja taka á móti neinum flótta­manni. Sama hlut­fall hjá Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum var innan við tíu pró­sent.

Könnun Mask­ínu fór fram dag­ana 4. til 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu sem er byggð á slembi­úr­taki úr Þjóð­skrá og nær til fólks af báðum kynjum á aldr­inum 18 til 75 ára. Svar­endur voru 747 og eru gögnin vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu í sam­ræmi við hvernig þeir þættir skipt­ast í þjóð­skrá.

Skýrslu Mask­ínu um könn­un­ina má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None