Læknar segja aukið fé vanta til fjármögnunar lyfja við alvarlegum sjúkdómum

16010792546_3a493f1af8_z.jpg
Auglýsing

„Það er áhyggju­efni ef lyfja­með­ferð sjúk­linga með alvar­lega sjúk­dóma verður ekki sam­bæri­leg því sem tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við,“ skrifa tveir læknar sem sitja í lyfja­nefnd Land­spít­al­ans. Ef stjórn­völd og heil­brigð­is­yf­ir­völd auki ekki fjár­veit­ingu til S-merktra lyfja í fjár­laga­frum­varpi næsta árs verði það mögu­lega raunin að lyfja­með­ferðir á Íslandi verði ekki sam­bæri­legar við með­ferðir á Norð­ur­lönd­un­um.

Þetta kemur fram í grein sem Gerður Grön­dal lyf- og gigt­ar­læknir og Gunnar Bjarni Ragn­ars­son yfir­læknir lyf­lækn­inga krabba­meina á Land­spít­al­anum skrifa í nýjasta Lækna­blað. Gerður og Gunnar segja að fjár­veit­ingin til S-merktra lyfja lækki um 210 millj­ónir króna milli ára vegna spár um geng­is­for­send­ur. Á móti sé raun­hækkun fram­lags um 195 millj­ónir til að mæta kostn­að­ar­hækkun vegna auk­ins magns.

Vegna þess hversu miklar fram­farir hafa orðið í lyfja­með­ferð margra sjúk­dóma eykst notkun vegna þess að sjúk­linga­hópar stækka. Til dæmis hefur fjöldi nýrra lyfja auk­ist og árangur lyfja­með­ferðar krabba­meins­sjúk­linga batnað og margir geta vænst lengra og betra lífs. „Ljóst er að kostn­að­ur­ mun aukast vegna þess­arar lyfja­þró­un­ar. Ef ekki verður hægt að taka upp ný krabba­meinslyf í takt við þró­un­ina, er ljóst að þjón­usta við krabba­meins­sjúk­linga mun versna og lifun þeirra verða skemmri en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við.“

Auglýsing

Gerður og Gunnar segja að vegna tak­mark­aðra fjár­heim­ilda á Íslandi hafi ekki verið unnt að inn­leiða mik­il­væg lyf sem séu nú þegar komin í notkun á Norð­ur­lönd­un­um. „Árið 2014 voru ein­ungis tekin upp fáein ný S-merkt lyf og á þessu ári er sömu sögu að segja, ein­ungis örfá ný lyf hafa verið tekin í notk­un, það er yfir­leitt  þau lyf sem auka ekki kostnað og koma í stað­inn fyrir önnur sam­bæri­leg lyf. Vegna fjár­skorts eru fjölda­tak­mark­anir á einni ákveð­inni við­ur­kenndri lyfja­með­ferð.“ Þá bíði mörg ný lyf inn­leið­ing­ar.

„Það er áhyggju­efni ef lyfja­með­ferð sjúk­linga með alvar­lega sjúk­dóma verður ekki sam­bæri­leg því sem tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við. Miðað við ofan­greint frum­varp til fjár­laga er ljóst að svig­rúm til upp­töku nýrra lyfja verður áfram mjög tak­markað og hætta á að greiðslu­þátt­töku í gagn­legri lyfja­með­ferð sem eykur kostn­að, verði hafn­að,“ skrifa Gunnar og Gerður og segj­ast von­ast til þess að athuga­semdir þeirra verði teknar til greina og fjár­veit­ing aukin fyrir næsta ár. Ann­ars sé ekki ljóst hvort hægt sé að halda lyfja­með­ferð sam­bæri­leggri við það sem tíðk­ist á Norð­ur­lönd­un­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None