Landsvirkjun hagnast um 8,5 milljarða - Blikur á lofti vegna lækkandi álverðs

burfell-1.jpg
Auglýsing

Hagn­aður Lands­virkj­unar á fyrri hluta árs­ins nam 63,9 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 8,5 millj­arða króna, en var 34,5 millj­ónir doll­ara á sama tíma­bili 2014. Að sögn Harðar Arn­ar­son­ar, for­stjóra Lands­virkj­un­ar, þá gekk rekst­ur­inn almennt vel á fyrri helm­ingi árs­ins. Sterkt sjóð­streymi gerði félag­inu kleift að halda skulda­lækkun áfram, en nettó skuldir lækk­uðu um 23 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Í upp­gjörstil­kynn­ingu segir Hörður að ýmis jákvæð teikn megi lesa úr árs­hluta­reikn­ingnum. Blikur séu þó á lofti í ytra umhverfi þegar litið er til skemmri tíma. „Ál­verð hefur lækkað mikið á síð­ustu mán­uð­um, sem hefur nei­kvæð áhrif á tekjur Lands­virkj­un­ar. Þá hefur köld tíð valdið því að inn­rennsli í lón Lands­virkj­unar hefur verið með minnsta móti í sum­ar,“ segir hann.

„Ýmis jákvæð teikn má lesa úr árs­hluta­reikn­ingnum núna þegar rekstr­ar­árið er hálfn­að. Lyk­il­kenni­tölur styrkjast, eig­in­fjár­hlut­fall er 42,2% miðað við 39,9% um ára­mótin og skuld­setn­ing sam­stæð­unnar mæld á móti rekstr­ar­hagn­aði fyrir afskriftir lækkar úr 6,6 í 5,8. Á fyrri helm­ingi árs­ins urðu þau jákvæðu tíð­indi að öllum fyr­ir­vörum var aflétt í raf­orku­sölu­samn­ingi við PCC BakkiSil­icon hf. Þá hófust fram­kvæmdir við bygg­ingu Þeista­reykja­virkj­unar á tíma­bil­inu.

Mikil eft­ir­spurn er eftir raf­orku á Íslandi, frá fjöl­breyttum iðn­aði sem er til­bú­inn að greiða hærra verð en áður. Lands­virkjun stefnir á að nýta öll þau tæki­færi sem fyr­ir­tækið hefur til auk­innar orku­vinnslu, til að mæta þess­ari áhuga­verðu eft­ir­spurn.“

Auglýsing

Rekstr­ar­tekjur Lands­virkj­unar á fyrstu sex mán­uðum árs­ins námu 215 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 28,7 millj­arða króna. Það er 6,2 pró­sent hækkun frá sama tíma­bili árið áður. Hagn­aður fyrir fjár­magnsliði og skatta (EBIT­DA) nam 169,3 millj­ónum doll­ara, jafn­virði um 22,5 millj­örðum króna. Nettó skuldir lækk­uðu um 171,9 millj­ónir doll­ara á tíma­bil­inu, eða um 22,9 millj­arða króna. Í lok júní námu skuldir 2.018,6 millj­ónum doll­ara, eða 268,5 millj­örðum króna.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None