Leggur til að nýir flokkar fái gjaldfrest vegna auglýsinga á RÚV þar til ríkisstyrkir berast

Fulltrúi Pírata í stjórn RÚV hefur sagt sósíalistum að hann muni leggja til við aðra stjórnarmenn að flokkar utan þings fái auglýsingatíma úthlutuðum með gjaldfresti fram á næsta kjörtímabil.

Stjórnmálaflokkarnir sem sitja á þingi skipa fulltrúa í stjórn Ríkisútvarpsins.
Stjórnmálaflokkarnir sem sitja á þingi skipa fulltrúa í stjórn Ríkisútvarpsins.
Auglýsing

Mörður Áslaug­ar­son, full­trúi Pírata í stjórn Rík­is­út­varps­ins, seg­ist ætla að leggja til við stjórn­ina næst er hún kemur saman að stjórn­mála­flokkar sem bjóða fram til Alþingis en eru utan þings fái frest til að greiða fyrir aug­lýs­ingar í miðlum RÚV þar til þeir fái styrki úr rík­is­sjóði.

Ef atkvæða­magn þeirra í kosn­ingum verði hins vegar ónægt til að fá rík­is­styrk, eða undir 2,5 pró­sentum af heild, verði kostn­að­ur­inn lát­inn niður falla af hálfu Rík­is­út­varps­ins.

Þetta sagði Mörður í umræðum á opnum spjall­hópi sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn heldur úti á Face­book, en þar var erindi sem fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins sendi á stjórn RÚV í gær til umræðu.

Í erind­inu, sem Gunnar Smári Egils­son fram­bjóð­andi flokks­ins sendi til stjórnar RÚV, auk útvarps­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra RÚV, var óskað eftir því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn fengi að aug­lýsa frítt í miðlum RÚV.

Auglýsing

Þessi beiðni var rök­studd með því að þeir flokkar sem sitji á þingi hefðu á kjör­tíma­bil­inu fengið millj­arða króna í styrki frá almenn­ingi í land­inu, sem sé síðan nýttur til að kaupa aug­lýs­ing­ar, meðal ann­ars í almanna­út­varp­inu.

Sex stjórn­mála­flokkar af þeim átta sem eru á þingi, allir nema Flokkur fólks­ins og Píratar sam­þykktu í upp­hafi kjör­tíma­bils til­lögu um að hækka fram­lög úr rík­is­sjóði til flokk­anna um 127 pró­sent. Í ár nema fram­lögin 728 millj­ónum króna.

Gunnar Smári skrif­aði að hætta væri á að erindi nýrra gras­rót­ar­fram­boða almenn­ings myndi „drukkna í aug­lýs­ingum þeirra flokka sem hafa skammtað sér þessa styrki“ og fór því fram á ókeypis aug­lýs­ingar í fjöl­miðlum RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent