Mætti jafnvel takmarka eða skattleggja utanlandsferðir fremur en að hækka vexti

Stefán Ólafsson segir að í stað þess að Seðlabankinn hækki vexti til að bregðast við einkaneyslu væri eðlilegra að stjórnvöld hækkuðu skatta á efnaðri hópa samfélagsins, til að hemja ofneyslu. Jafnvel mætti takmarka utanlandsferðir eða skattleggja þær.

Stefán Ólafsson prófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu.
Stefán Ólafsson prófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu.
Auglýsing

Stefán Ólafs­son, pró­fessor emeritus við HÍ og sér­fræð­ingur hjá Efl­ingu, gagn­rýnir vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans og rök­semdir Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra fyrir þeim harð­lega í grein sem hann ritar á Vísi í dag.

Í grein­inni segir Stefán að „of­neysla efn­aðri hluta þjóð­ar­inn­ar“ sé vanda­málið sem við sé að etja hvað varði mikla einka­neyslu lands­manna. Vaxta­hækk­an­ir, með auknum byrðum á almennt launa­fólk, séu ekki svarið við þess­ari ofneyslu.

„Það sem væri eðli­legra að gera væri að setja strax á aukna skatta á hærri tekju­hópa og stór­eigna­fólk, til að hemja ofneyslu þeirra sem eru að skapa þennan vanda. Jafn­vel mætti tak­marka utan­lands­ferðir eða skatt­leggja þær sér­stak­lega til að hemja óhóf­ið,“ skrifar Stefán í grein sinni.

Auglýsing

Að sama skapi segir hann að þessi staða verði að ráða því hvernig gengið verður frá kjara­samn­inga­við­ræð­unum sem nú standa yfir. „Hækk­anir launa þurfa að verða meiri í lægri launa­hópum og ríkið þarf að lækka skatta á lægri tekju­hópa og auka hús­næð­is­stuðn­ing stór­lega og aðrar tekju­til­færslur til heim­ila,“ skrifar Stef­án.

Seðla­banka­stjóri með hug­ann við eyj­una grænu

Á kynn­ing­ar­fundi pen­inga­stefnu­nefndar í morg­un, þar sem farið var yfir for­sendur tíundu vaxta­hækk­un­ar­innar frá því í maí í fyrra, kom spænska eyjan Tenerife fyrir í máli Ásgeir Jóns­sonar seðla­banka­stjóra, sem benti á að vöxtur einka­neyslu hefði verið umfram það sem Seðla­bank­inn hefði gert ráð fyr­ir. Það hefði komið fram meðal ann­ars í lækkun á gengi krón­unn­ar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Bára Huld Beck

„Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyr­i,“ sagði seðla­banka­stjóri á fundi morg­uns­ins og setti ferðir lands­manna til Tenerife í sam­hengi við inn­grip bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði – Seðla­bank­inn gæti „ekki fjár­­­magnað Tene-­ferðir úr forð­an­um“.

Í grein sinni segir Stefán Ólafs­son að það sé „fólkið sem er með hærri tekj­urnar og á meiri eignir sem skapar vand­ann.“

„Það eru þau sem fara fimm sinnum til Tenerife á ári. Síðan tekur Seðla­bank­inn að sér að leggja veru­lega auknar vaxta­byrðar á skuldugt fólk í lægri tekju­hóp­unum – til að draga úr neyslu þeirra. Það er verið að hengja verka­fólk fyrir hátekju­fólk,“ skrifar Stef­án.

Stýri­vextir voru hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig í morgun og eru nú 6 pró­sent. Hafa þeir nú ekki verið hærri síðan haustið 2010.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent