Már segist alltaf hafa haft mikið álit á Þorsteini Má í Samherja

18598766342_cd570ececc_z.jpg
Auglýsing

Már Guð­munds­son Seðla­banka­stjóri seg­ist hafa leitað leiða til að ljúka Sam­herj­a­mál­inu með sátt en hafi ekki mátt það. Hann seg­ir að lag­ara­mm­inn sem Seðla­bank­inn þarf að vinna eftir í rann­sóknum sé mögu­lega of þröng­ur. Þetta kom fram í kvöld­fréttum RÚV.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, hefur gagn­rýnt Seðla­bank­ann harka­lega und­an­far­ið, eftir að sér­stakur sak­sókn­ari felldi niður saka­mál, sem hófst með rann­sókn gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans á Sam­herja. Þor­steinn hefur sagt ann­ar­legar hvatir liggja að baki rann­sókn bank­ans, sakar hann um ill­vilja og fals­an­ir. Hann vill að Már segi af sér og hefur sakað hann um að vilja eyði­leggja sem mest fyrir sér og útgerð­inni.

„Það er eng­inn ill­vilji á bak­við þetta hjá okk­ur, þvert á móti. Svona per­sónu­lega hef ég alla tíð haft mikið álit á Þor­steini Má og Sam­herja og svo fram­veg­is, og það var nú mér mikið áfall þegar kom í ljós að svo virt­ist vera að þarna hefði verið brot á gjald­eyr­is­lög­um,“ segir Már í sam­tali við RÚV. Hann seg­ist hissa á Þor­steini Má.

Auglýsing

Stór fyr­ir­tæki geti stundum nudd­ast utan í opin­bert reglu­verk. „Kannski ekk­ert endi­lega með ein­hvern ein­beittan brota­vilja.“ Hann segir að þegar við­skipti eða reglu­verk verði flókið get­i ­menn stundum dottið vit­lausu megin við lín­una, þó að það hafi kannski ekki alltaf verið mein­ing­in. „Og það er engin ástæða til að per­sónu­gera þetta, hvorki gagn­vart Sam­herja og honum eða gagn­vart okk­ur.“

Hann seg­ist hafa látið kanna hvort ein­hver leið væri til að lenda Sam­herj­a­mál­inu með sátt en lög­fræð­ingar bank­ans hafi kom­ist að því að slíkt væri lög­brot. „Ef það er grunur um meiri­háttar brot þá ber okk­ur, ekki bara meg­um, heldur ber, það er á okkur sú laga­skylda að kæra það þá til sak­sókn­ara sem er lög­reglu­yf­ir­vald,“ segir Már við RÚV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None