Marzieh Afkham önnur konan sem skipuð er sendiherra fyrir Íran

h_50991214-1.jpg
Auglýsing

Marzieh Afk­ham verður á næst­unni fyrsta konan til að gegna emb­ætti sendi­herra fyrir Íran frá því ­fyrir bylt­ing­una árið 1979. Hún verður jafn­framt önnur konan í sögu rík­is­ins til þess að gegna þessu emb­ætti. Greint var frá skipun Afk­ham í írönskum fjöl­miðlum í gær, en ekki hefur verið greint frá því hvar hún verður sendi­herra.

Afk­ham er nú tals­kona íranska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og er fyrsta konan til að gegna því starfi. Hún hefur um þrjá­tíu ára reynslu af störfum innan utan­rík­is­þjón­ust­una.

Fyrir íslömsku bylt­ing­una í Íran árið 1979 hafði ein kona gegnt emb­ætti sendi­herra, það var Mehrangiz Dolats­hahi, sem var sendi­herra í Dan­mörku frá 1976 og þar til bylt­ingin var gerð. Hún var einnig þing­maður og barð­ist mikið fyrir umbótum í þágu kvenna, meðal ann­ars með fjöl­skyldu­lög­unum sem gáfu konum rétt á að sækja um skilnað og halda for­ræði yfir börnum sín­um.

Auglýsing

Hassan Rou­hani for­seti lands­ins sagði í síð­ustu viku að það væri skylda rík­is­stjórn­ar­innar að skapa konum fleiri tæki­færi, en að breyt­ingar á hefðum væru ekki ein­göngu í hans hönd­um.

Mann­rétt­inda­sam­tök hafa fagnað skipun Afk­ham sem jákvæðu skrefi í jafn­rétt­is­bar­átt­unni í Íran. Þó breyti það ekki því að íranska þingið sé enn að reyna að setja ný lög sem tak­marki hlut­verk kvenna á opin­berum vett­vangi. Til að mynda stendur til að breyta fjöl­skyldu­lög­unum þannig að fólk megi ekki lengur gang­ast undir ófrjó­sem­is­að­gerðir og að aðgangur að getn­að­ar­vörnum verði tak­mark­aður veru­lega.

Rou­hani þykir hóf­samur for­seti og hann hefur slakað á ýmsu sem við­kemur kynja­mál­um. Nýlega var konum gert kleift að sækja íþrótta­við­burði, sem var bann­að. Þá hefur hann sagst vera mót­fall­inn aðgrein­ingu kynj­anna í háskól­um. Enn er þó engin kona ráð­herra. Ein kona hefur gegnt emb­ætti ráð­herra, en það var undir for­vera Rou­hani, Mahmoud Ahma­di­nejad.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None