Meira landrými fer undir hvern íbúa höfuðborgarsvæðisins en nokkru sinni fyrr

10191521713-a0fe08b602-z.jpg
Auglýsing

Byggð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur þynnst veru­lega á und­an­förnum ára­tugum og nú fer meira land­rými undir hvern íbúa en nokkru sinni fyrr. Aðeins 35 íbúar bjuggu á hverjum hekt­ara lands árið 2012, sem er mjög dreifð byggð fyrir borg­ar­svæði, en árið 1985 voru 54 íbúar á hverjum hekt­ara.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu og sam­eig­in­legri stefnu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Höf­uð­borg­ar­svæðið 2040, sem kom út í vik­unni.

Íbúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði um 70 þús­und frá árinu 1985 til árs­ins 2012 og gert er ráð fyrir því að á næstu 25 árum verði fjölg­unin 70 þús­und manns til við­bót­ar. Auk fólks­fjölg­unar sem spáð er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er gert ráð fyrir að Suð­vest­ur­hornið haldi áfram að vaxa, en þar hefur einnig verið fjölgun und­an­farin ár á meðan íbúa­fjöldi ann­arra lands­hluta hefur ýmist staðið í stað eða minnk­að, að því er fram kemur í skýrsl­unn­i. ­Síð­ustu 25 ár hefur fjölgun fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu numið tæp­lega 90 pró­sentum af allri fólks­fjölg­un. ­Gangi þessar spár eftir verða íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins farnir að nálg­ast 300 þús­und árið 2040.

Auglýsing

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru sam­mála um að þess­ari fjölgun fólks verður að mæta án þess að bíla­um­ferð auk­ist í sama hlut­falli og án þess að óbyggt land verði brotið í sama mæli og gert hefur verið und­an­farna ára­tugi.

Frá árinu 1985 hafa 37,5 fer­kíló­metrar verið teknir undir íbúða­byggð, sem er álíka stórt land­svæði og Reykja­vík vestan Suð­ur­lands­vegar ásamt Sel­tjarn­ar­nesi.

þéttingbyggðar Sam­an­burður milli áranna 1985 og 2012, skýr­ing­ar­mynd úr stefnu sveit­ar­fé­lag­anna.

Þá kemur fram í skýrsl­unni að bíla­um­ferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vaxið hlut­falls­lega meira en íbúa­fjöldi síð­ustu ára­tuga. Fjöldi bíla var 67.500 árið 1985 en árið 2012 voru bíl­arnir orðnir 125.500 tals­ins. Það þýðir yfir 1,5 bíll á hverju heim­ili. Ef bílum fjölgar í sama hlut­falli og fólki munu 40 þús­und bílar bæt­ast við bíla­flot­ann til árs­ins 2040.

Lengd ferða hefur líka auk­ist eftir því sem mörk byggð­ar­innar hafa þan­ist út og hlut­fall ferða sem eru farnar með bíl eru með því hæsta sem finnst í borgum af sam­bæri­legri stærð á norð­lægum slóð­um, eða um 75 pró­sent. Að sama skapi er hlutur almenn­ings­sam­gangna lít­ill í alþjóð­legum sam­an­burði, aðeins fjögur pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None