Meirihlutinn í Bretlandi fallinn samkvæmt nýrri könnun

h_51794677-1.jpg
Auglýsing

Verka­manna­flokk­ur­inn og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn mæl­ast sam­an­lagt með 326 þing­sæti sam­kvæmt nýj­ustu könnun breska blaðs­ins Guar­dian, sem gerir nú dag­legar skoð­ana­kann­anir vegna þing­kosn­ing­anna sem framundan eru í Bret­landi.

Þessi sæta­fjöldi myndi tryggja flokk­unum tveimur meiri­hluta í breska þing­inu, og þetta er í fyrsta skipti sem Guar­dian mælir flokk­anna tvo með meiri­hluta.

Á móti hefur fjöldi þing­sæta núver­andi stjórn­ar­flokk­anna, Íhalds­flokks­ins og Frjáls­lyndra demókrata, farið niður fyrir 300 sæti. Flokk­arnir næðu því ekki meiri­hluta í þing­inu ef marka má könn­un­ina í dag, ekki einu sinni þótt þau sæti sem minni flokkar eins og UKIP og DUP séu tekin með í reikn­ing­inn.

Auglýsing

Nicola Stur­ge­on, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins, hefur gert það ljóst að hún myndi ekki styðja rík­is­stjórn Íhalds­flokks­ins og myndi kjósa með van­trausti á flokk­inn. Það myndi Verka­manna­flokk­ur­inn lík­lega einnig ger­a. Ef því er bætt við að sam­kvæmt könnun Guar­dian næðu Græn­ingjar inn einu þing­sæti og welski flokk­ur­inn Plaid Cymru þremur yrði fjöldi þing­manna sem myndi kjósa gegn Íhalds­flokknum 333. Þá er mögu­leg stjórn stjórn­ar­flokk­anna tveggja enn ólík­legri.

Verka­manna­flokk­ur­inn fengi 272 sæti sam­kvæmt nýju könn­un­inni, Íhalds­flokk­ur­inn 269 og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn 54. Frjáls­lyndir demókratar fengju 29. Ef eng­inn flokkur nær meiri­hluta í kosn­ing­unum gæti sam­steypu­stjórn með fleiri en 322 þing­sæti lík­lega stað­ist van­traust.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None