Mönnunarvandi spítalans verði ekki leystur með auknu fjármagni

Aukið fjármagn í heilbrigðiskerfinu mun ekki leysa öll vandamál að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Formaður Samfylkingarinnar spurði ráðherra á Alþingi í dag hvort ekki væri full ástæða til að skoða fjármálaáætlun í ljósi neyðarástands á bráðamóttöku.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahgsráðherra, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahgsráðherra, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

„Því er haldið fram að með því að láta Land­spít­al­ann hafa aukið fjár­magn þá leys­ist öll okkar vanda­mál. Ég held að málið sé því miður ekki svo ein­falt.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þar sem Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði ráð­herra hvort ekki væri full ástæða til þess að end­ur­skoða fjár­mála­á­ætlun í ljósi þess neyð­ar­á­stands sem ríkir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og ætla spít­al­anum meira fé?

Logi vís­aði í við­tal við Hjalta Má Björg­vins­son, bráða­lækni og starf­andi yfir­lækni á bráða­deild Land­spít­al­ans, við mbl.is í síð­ustu viku þar sem hann sagði ástandið hið versta í sögu bráða­deild­ar­inn­ar. Dæmi eru um upp­sagnir hjúkr­un­ar­fræð­inga á bráða­mót­tök­unni vegna langvar­andi álags og lélegs aðbún­að­ar.

Auglýsing

Logi vís­aði einnig í umsögn Land­spít­al­ans um fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023–2027, þar sem bent er á á mikið álag spít­al­ans vegna COVID-19 og hækk­andi ald­urs þjóð­ar­inn­ar. Í umsögn­inni segir að verði það nið­ur­stað­an, að fjár­veit­ingar til rekstrar Land­spít­ala hækki um eitt pró­sent á næsta ári, tvö pró­sent næstu tvö ár þar á eftir og 1,3 pró­sent árin þar á eft­ir, er ljóst að Land­spít­ali mun ekki ná þeirri við­spyrnu sem nauð­syn­leg er í kjöl­far COVID-19 og mun eiga mjög erfitt með að mæta þeim miklu áskor­unum sem spít­al­inn stendur frammi fyr­ir. „Slík nið­ur­staða yrði mikil von­brigð­i,“ segir í umsögn­inni.

Freist­andi að spyrja ráð­herra að þessu í póli­tískum til­gangi

Bjarni sagði að vissu­lega væri verið að snerta á mjög mik­il­vægu máli sem varðar heil­brigð­is­þjón­ust­una í land­inu en sagði að horfa þurfi til fjöl­breytt­ari úrræða en aukið fjár­magn.

„Mönn­un­ar­vand­inn einn og sér verður ekki leystur með auk­inni fjár­heim­ild til Land­spít­al­ans. Við hljótum að geta verið sam­mála um það,“ sagði Bjarni .

„Það er eflaust í póli­tískum til­gangi dálítið freist­andi að koma með þessa ein­földu mynd, spyrja fjár­mála­ráð­herrann: Get­urðu ekki bara mokað pen­ingum í vand­ann og þá hverfur vanda­mál­ið? En það er því miður ekki svona,“ sagði fjár­mála­ráð­herra jafn­framt.

Logi sagð­ist með­vit­aður um að auð­vitað leys­ast ekki öll vanda­mál með auknu fé. „En það vant­ar,“ sagði Logi og vís­aði aftur í umsögn Land­spít­al­ans við fjár­mála­á­ætl­un­ina. „Við erum að missa okkar besta fólk vegna van­fjár­mögn­unar og vegna skorts á yfir­sýn. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra verður ein­fald­lega að líta í eigin barm vegna þess að rík­is­stjórnum hans hefur ekki tek­ist að leysa þann vanda sem hann vísar kannski til að hægt væri að leysa.“

Bjarni við­ur­kenndi að heil­brigð­is­málin heilt yfir væru gríð­ar­lega mikil áskorun en sagði flest þeirra mála sem Logi minnt­ist á ekki verða leyst úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu einu með auknum fjár­fram­lögum heldur kalli þau á mikla sam­hæf­ingu í kerf­inu í heild.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent